Fotbolti.net
Besta deildin
@haflidibHafliði Breiðfjörð
Hafliði Breiðfjörð
ÍBV
ÍBV
Besta-deild karla
Hásteinsvöllur
16 stiga hiti gola og heiðskýrt. Bongó!
0 - 1
Fylkir
Fylkir
0 - 185' Orri Sveinn Stefánsson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Fylkir skildi eyjamenn eftir í fallsæti

Hvað réði úrslitum?

Þetta var heilt yfir ekkert sérlega skemmtilegur fótboltaleikur og í fyrri hálfleik var bara ekkert að gerast. Bara eins og menn væru með sólsting í veðurblíðunni. Í þeim seinni sá maður leikmenn leggja meira í verkefnið og það skilaði að lokum marki hjá Orra Sveini með skalla í teignum.

Bestu leikmenn

1. Orri Sveinn Stefánsson, Fylkir

Öflugur í vörn Fylkisliðsins og var maðurinn sem réði úrslitum í dag, skoraði með góðum skalla yfir Guy Smit í markinu.

2. Ólafur Karl Finsen, Fylkir

Mesta lífið í sóknarleik Fylkis var í kringum Ólaf Karl Finsen sem skapaði mestu hættuna í leiknum. Sést svo vel á honum að hann hefur meiri gæði en flestir aðrir á vellinum.

Atvikið

Fyrir leikinn kíkti Hermann Hreiðarsson þjálfari ÍBV í skýlið sem hýsir fréttamenn og plötusnúð og vallarkynni og vildi hafa áhrif á lagavalið. Hann lét þar spila ,,Don't worry, everything is going to be allright" með Bob Marley fyrir Jamaíka mennina í liðinu eftir erfiða tíma. Hann breytti líka um inngöngulag, hér eftir verður það ,,Þar sem hjartað slær," með Sverri Bergmann og Fjallabræðrum.

Hvað þýða úrslitin?

Þessi þrjú stig sem voru í boði í kvöld voru rosalega mikilvæg í fallbaráttu deildarinnar. Sigur Fram á KA þýðir að ÍBV er komið í fallsæti nú þegar tvær umferðir eru eftir áður en deildin fer í tvískiptingu. Sigurinn blés Fylkismönnum það mikinn byr í brjósti að þeir eru strax farnir að tala um að ætla að vinna efri hlutann eftir tvískiptingu.

Vondur dagur

Breki Ómarsson leiddi framlínu ÍBV liðsins í dag, komst á stundum í ansi góða stöðu til að vera í færum en það gekk ekkert hjá honum. Í eitt skiptið fór hann ansi illa með upplagt færi eftir mistök í vörn Fylkis.

Dómarinn - 7

Heilt yfir fínn leikur hjá Helga Mikael í dag og lítið um stór atvik. Þó er ljóst að Ragnar Bragi Sveinsson varði með hendi rétt fyrir utan vítateigslínu í lok leiksins og þar átti auðvitað að dæma aukaspyrnu á hættulegum stað og lyfta spjaldi.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.