SKÝRSLAN: Stjarnan klifrar upp töfluna
Hvað réði úrslitum?
Það var einfaldlega Stjarnan sem skoraði mark og ekki FH. Þetta var heilt yfir frekar lokaður leikur og fátt um opin færi. FH fékk þó sannarlega tækifæri til að skora mörk í dag og áttu til að mynda þrjú skot í tréverki í dag sem reyndist þeim dýrkeypt.
Bestu leikmenn
1. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir
Flottur leikur hjá Ingibjörgu sem var dugleg í dag og átti góðar stöðvanir inn á miðjusvæðinu í uppspili FH. Fyrst og fremst fær hún þennan titil fyrir að hafa skorað glæsilegt mark sem réði úrslitum í þessum leik.
2. Mackenzie Marie George
Hættulegust fram á við í FH liðinu og gerði varnarmönnum Stjörnunnar oft á tíðum lífið leitt, átti hættulegar fyrirgjafir sem hefðu mátt skila marki en hún hefði stundum getað verið fljótari að skjóta sjálf á markið.
Atvikið
Það er bara markið sem Stjarnan skoraði á 28. mínútu leiksins. Það var frekar rólegt yfir leiknum og ekki mikið um opnanir en svo kom þetta mark, sem reyndist sigurmarkið.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan heldur áfram að klifra upp töfluna og kemur sér í 3. sætið með 26 stig. FH er áfram með 25 stig og fer niður í 5. sætið.
Vondur dagur
Það var kannski engin sem átti beint vondan dag en FH konur eru örugglega hundsvekktar að hafa ekki sett mark í þessum leik, en stangirnar voru fyrir þeim allavega þrisvar í leiknum.
Dómarinn - 8.0
Flott dómgæsla hjá finnska dómaranum og hennar aðstoðarkonum.



