SKÝRSLAN: Fjörugur leikur endar í jafntefli á Selfossi
Hvað réði úrslitum?
Bæði lið sköpuðu sér fullt af færum en Selfoss sterkari aðilinn í seinni hálfleik og áttu meria skilið eftir að hafa klúðrað nokkrum dauðafærum
Bestu leikmenn
1. Aron Ingi Magnússon (Þór)
Skoraði 2 mörk og var mjög líflegur á kanntinum fyrir Þór
2. Aron Einarsson (Selfoss)
Var frábær á miðjunni og sýndi flotta takta í leiknum
Atvikið
Klúðu Gumma Tyrfings á móti galopnu marki og erfiðara að klúðra en skora og leikurinn hefði geta farið í hvaða átt sem er eftir það
Hvað þýða úrslitin?
Selfoss ennþá í 10. sæti en núna með 20 stig en Þór í 6. sæti með 24 stig en núna eru þeir 2 stigum frá umspilinu og með Grindavík og Gróttu á hælunum
Vondur dagur
Vondur dagur hjá Selfossi sem fengu á sig einföld mörk en gátu ekki klárað þau sjálfir og hefðu getað farið heim með þrjú stig
Dómarinn - 5/10
Var möguleg víti í fyrri hálfleik fyrir Þór og svo voru nokkur atvik í seinni hálfleik sem fylgdu ekki hans línu í leikum


