SKÝRSLAN: Þróttarar gerðu vel að sækja stig gegn ÍA
Hvað réði úrslitum?
Sveiflukenndur leikur. Þróttarar hefðu auðveldlega getað skorað fleiri mörk í fyrri hálfleik og það sama má segja um ÍA í seinni hálfleik. Heilt yfir er þetta því sanngjarnt. Hvorugt liðið tók sín færi. Þróttarar líklega sáttari með stigið.
Bestu leikmenn
1. Óskar Sigþórsson
Mjög hrifinn af hans frammistöðu í þessum leik. Valdið hans á teignum var engu líkt og gerði það að verkum að tíðar fyrirgjafir Skagamann í átt að Viktori urðu að engu. Varði síðan nokkrum sinnum frábærlega.
2. Johannes Vall
Johannes átt mjög flott tímabil í hafsentnum á þessu tímabili. Mjög solid í dag og steig ekki feilspor. Góð löpp á honum sem gerir þeim einfalt fyrir að byrja sóknir.
Atvikið
Hlynur Sævar fékk frábært færi til að vinna þetta á 64 mínutu en Óskar varði frábærlega frá honum og tryggði Þrótturum þar eitt stig í kvöld.
Hvað þýða úrslitin?
Staða liðanna er óbreytt. ÍA missir þó bilið uppí 3 stig í baráttunni við Mosfellinga. Þróttarar enn í fallsæti en baráttan þar er ógnvekjandi. Mörg lið gætu lent í þessu alræmda 11. sæti.
Vondur dagur
Eins góður og Viktor Jónsson hefur verið í sumar þá var þetta ekki dagurinn hans. Kom sér ekki í góðan takt við leikinn og miðað við hans standard þá var þetta ekki nógu gott.
Dómarinn - 9
Nokkur köll eftir vítum. Mér fannst ekkert þeirra atvikta verðskulda víti. Gunnar lét ekki blekkja sig þar og fyrir það á hann hrós skilið. Vel dæmdur leikur.



