Fotbolti.net
Besta deildin
@dani_darriDaníel Darri Arnarsson
Tindastóll
Tindastóll
Besta-deild kvenna
Sauðárkróksvöllur
Mikill vindur og skýjað á Króknum
0 - 3
Valur
Valur
0 - 136' Amanda Jacobsen Andradóttir0 - 238' Arna Sif Ásgrímsdóttir 0 - 370' Ásdís Karen Halldórsdóttir
Dómari: Bergvin Fannar Gunnarsson

SKÝRSLAN: Valsarar með 5 stiga forystu á toppnum

Hvað réði úrslitum?

Valsarar og pressan þeirra var frábær Tindastóll voru í svakalegum vandræðum að spila frá markverði, það hægðist aðeins á leiknum í þeim seinni en þegar Pétur fór að gera breytingar þá kviknaði aftur í völsurum og þær kláruðu leikinn svakalega vel.

Bestu leikmenn

1. Arna Sif Ásgrímsdóttir

Arna var geggjuð í dag varnar sem sóknarlega, skoraði 1 og hélt hreinu frábær leikur hjá henni.

2. Ásdís Karen Halldórsdóttir

Ásdís ógnaði svakalega, Stólarnir voru í svakalegur brasi með hana. Erfitt val þar sem Amanda átti líka geggjaðan leik og Fanndís var frábær þegar hún kom inná.

Atvikið

Ætla bara segja sláarskot Fanndísar sem kom hreinlega bara út úr engu og var svakalegt skot hefði verið gaman að sjá það inni.

Hvað þýða úrslitin?

Valsarar halda sér á toppnum og eru komnar með 5 stiga forskot á Blika sem sitja í öðru sæti, mikilvæg 3 stig fyrir Val hér í dag. Stólarnir eru í erfiðari stöðu sitja í 8.sæti 1 stigi frá fallsæti en þær eiga einn leik inni á Keflavík og svo getur allt gerst þegar deildin skiptist í tvennt.

Vondur dagur

Enginn átti svakalega vondan dag nema kannski bara sóknarlína Tindstóls sem var í algjöri brasi allan leikinn, eina sem Stólarnir sköpuðu voru hreinlega bara hornspyrnur sem ekkert varð úr.

Dómarinn - 7

Hver elskar ekki fínan dag hjá dómaranum, engar stórar ákvarðarnir bara fínn dagur á skrifstofunni.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.