Salma Paralluelo
Alex Greenwood þarf aðhlynningu. Fékk hendi Paralluelo í andlitið þegar þær voru að kljást um boltann.Lauren James kom inn á í hálfleik og hér var hún ekki langt frá því að jafna leikinn með lúmsku skoti pic.twitter.com/nA6tkV4QkI
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) August 20, 2023
Þvílík dramatík! Mary Earps ver spyrnu Jennifer Hermoso og England er ennþá inni í leiknum pic.twitter.com/7jCrF0tV6E
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) August 20, 2023
Spánn fær víti!! Boltinn fer í höndina á Walsh og dómarinn tók sér góðan tíma í að skoða atvikið í VAR-skjánum pic.twitter.com/j3HZFRyjGn
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) August 20, 2023
Spánverjar eru svo snöggir að refsa fyrir mistök Englendinga, hér er hörkuskot frá Bonmati! pic.twitter.com/08Gc9hUycu
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) August 20, 2023
Jennifer Hermoso og Georgia StanwayLauren Hemp
Of sein og brýtur á Codina.England fær líka sín færi en hér tekst Lauren Hemp ekki að stýra boltanum á markið pic.twitter.com/5MmYk35f10
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) August 20, 2023
Þær spænsku byrja seinni hálfleikinn einnig af krafti og hér er Caldentey með fínt skot en flott markvarsla hjá Earps! pic.twitter.com/nJR5CBJxax
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) August 20, 2023
Staðan er 1-0 í hálfleik en Spánverjar voru svo nálægt því að tvöfalda forystuna með síðustu spyrnu fyrri hálfleiks pic.twitter.com/rdsMbet0gz
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) August 20, 2023

Olga Carmona (stoðsending: Mariona Caldentey)
Frábær sókn. Olga Carmona með frábært skot í fjærhornið eftir að Caldentey renndi boltanum á hana! Lucy Bronze tapaði boltanum í aðdraganda marksins.Spánverjar skora fyrsta markið! Hnitmiðað skot hjá Olgu Carmona ???????? pic.twitter.com/aZBgSVjj4n
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) August 20, 2023
Spánverjar í dauðafæri! Ótrúlegt að þessi hafi ekki endað í netinu pic.twitter.com/RP6D5TpKwI
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) August 20, 2023
Letizia, prinsessan af Asturias, drottning Spánar er á vellinum.Það er England sem á fyrsta alvöru færi í úrslitaleiknum! Skot í slána en Spánn slapp með skrekkinn pic.twitter.com/lOvTCQpM2V
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) August 20, 2023

Byrjunarlið Englands ætti að detta inn á næstu mínútum.
Hin hollenska Sarina Wiegman hefur fyrir löngu stimplað sig sem einn besti fótboltaþjálfari í heiminum. Wiegman hefur umbylt enska kvennalandsliðinu en hún stýrði liðinu til Evrópumeistaratitils á síðasta ári.
Þar áður varð hún Evrópumeistari með Hollandi og kom hún Hollendingum einnig í úrslitaleikinn á HM 2019. Hollenska liðið tapaði reyndar þeim leik gegn ógnarsterku liði Bandaríkjanna.
Wiegman elskar úrslitaleiki en hún er núna að fara í sinn fjórða úrslitaleik á stórmóti í röð. Það sem meira er að þá vantar algjöra lykilmenn í enska liðið; það vantar fyrirliðann Leah Williamson og það vantar Beth Mead, sem var best á EM í fyrra.
„Augljóslega er þetta stærsti leikurinn, sá sem manni dreymir um og skiptir mestu máli," segir Alessio Russo, sóknarmaður enska liðsins. Hún hefur byrjað alla leiki Englands á mótinu og skoraði gegn Ástralíu í undanúrslitum.
„Maður fær fiðringinn þegar við erum í göngunum og klár í að labba inn á völlinn. Þetta er magnaður viðburður, ótrúlegt mót og þarna viljum við vera. Ég get ekki beðið."
Russo segist hafa þóst vera að spila úrslitaleik HM þegar hún lék sér við bræður sína í æsku.
„Við vorum að leika okkur og gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn. Það er sérstök tilfinning að vera að spila úrslitaleik HM á sunnudaginn," segir Russo.
Jorge Vilda þjálfari spænska kvennalandsliðsins segir að liðið væri ekki komið í úrslitaleik HM ef fótboltasamband Spánar hefði ekki sýnt honum stuðning þegar leikmenn liðsins snerust gegn honum á síðasta ári.
Tæpt ár er síðan fimmtán leikmenn landsliðsins skrifuðu undir tölvupóst og kröfðust þess að Vilda yrði rekinn.
Leikmennirnir sögðu að þjálfaratíð Jorge Vilda hefði haft neikvæð áhrif á andlega heilsu sína og að þær myndu hætta að spila fyrir landsliðið nema hann yrði rekinn. Spænska sambandið stendur með Vilda og sagði það ekki í verkahring leikmanna að reka eða ráða þjálfara.
„Þessar aðgerðir eru langt frá því að vera til fyrirmyndar og eru utan við gildi fótbolta og íþrótta. Að taka þessar ákvarðanir eru ekki á valdsviði leikmanna," sagði spænska sambandið í yfirlýsingu í fyrra.
Það borgaði sig svo sannarlega að sýna Vilda stuðning. Þær sem skrifuðu undir bréfið voru settar til hliðar en þrjár af þeim hafa síðan snúið aftur og eru í HM hópnum; Mariona Caldentey, Aitana Bonmati og Ona Batlle.
Lestu nánar um málið
Lauren James leikmaðr Englands fékk tveggja leikja bann eftir að hún steig á andstæðing sinn í leik gegn Nígeríu í 16-liða úrslitum. Hún er lögleg í úrslitaleiknum.
„Lauren er framúrskarandi leikmaður og mun halda áfram að skapa magnaðar stundir fyrir land og lið," segir Emma Hayes, stjóri hennar hjá Chelsea. James hefur skorað þrjú mörk og átt þrjár stoðsendingar í þeim þremur leikjum sem hún hefur spilað á mótinu.
Hin bandaríska Tori Penso fær það verkefni að dæma leikinn. Aðstoðardómararnir koma einnig frá Bandaríkjunum en fjórði dómarinn er japanskur og VAR dómarinn frá Níkaragva.
Leikvangurinn tekur 81.500 áhorfendur en hann var vígður í mars 1999.


