Fotbolti.net
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Lengjudeild karla
Vivaldivöllurinn
Grótta
Grótta
0 - 2
Völsungur
Völsungur
0 - 111' Fernando Jimenez Arranz0 - 238' Elvar Baldvinsson
Dómari: Sveinn Arnarsson
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Völsungur áfram í Lengjunni

Hvað réði úrslitum?

Þetta var grind sigur hjá Völsungi Vörnin var mjög þétt og þótt Grótta hafi fengið nokkur færi voru þau ekki af hættulegri gerðinni. Völsungur fékk tvö almennileg færi og skoraði úr þeim báðum. Ég man ekki eftir því að markvörður Völsungs hafi þurft að taka einhverjar stórkostlegar sjónvarpsvörslur.

Bestu leikmenn

1. Elvar Baldvinsson (Völsungur)

Vörnin var ótrúlega þétt. Elvar henti sér í allar tæklingarnar og skoraði svo annað markið, sem var vel gert. Grótta fékk engin almennileg færi þar sem vörn Völsungs gaf þeim lítið sem ekkert svæði til að athafna sig.

2. Fernando Jimenez Arranz (Völsungur)

Hann reyndi allan leikinn og gafst aldrei upp. Hann var stöðugt að stríða vörn Gróttu og var fljótur að hugsa þegar boltinn datt fyrir hann í fyrsta markinu.

Atvikið

Eftir seinna mark Völsungs breyttist leikurinn. Völsungur dró sig aftar og lagði áherslu á varnarleikinn og leyfði Gróttu ekki að komast í almennileg færi.

Hvað þýða úrslitin?

Völsungur verður áfram í Lengjudeildinni, þvert á spár sérfræðinganna. Þetta er annað tímabilið í röð sem sérfræðingar spáðu liðinu falli, en Völsungur hefur í bæði skiptin staðið af sér fallbaráttuna. Grótta endar tímabilið í áttunda sæti með 27 stig.

Vondur dagur

Ég set spurningamerki um hvort að Grótta var farinn að hugsa út í fríið sitt, það var lítið að gerast hjá þeim. McLagan leit ekki vel út í fyrsta marki Völsungs og átti að gera betur þar. Mennirnir sem komu inn á gerðu líka lítið.

Dómarinn - 6

Það voru nokkrar tæklingar í leiknum, sérstaklega hjá Völsungi, þar sem ég set spurningamerki um hvort að ætti að vera gult.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.