SKÝRSLAN: Bragðdauf stemming í Njarðvík!
Hvað réði úrslitum?
Njarðvík voru miklu betri aðilinn í fyrri hálfleik, og áttu jafnvel að skora fleiri mörk í fyrri hálfleiknum. Svo í þeim síðari gerði Afturelding Fjórfalda skiptingu, og Njarðvík gerðu þrefalda og það tók algjörlega taktinn úr leiknum og varð seinni hálfleikurinn ekki mikið fyrir augað. En heilt yfir voru Njarðvík betri aðilinn í leiknum.
Bestu leikmenn
1. Viktor Nói Vidarsson
Viktor Nói spilaði vel í dag og alltaf hætta í kringum hann. Hann skoraði einni laglegt mark sem kom Njarðvík yfir í leiknum.
2. Arnleifur Hjörleifsson
Arnleifur var flottur í bakverðinum í dag var eins og rennilás upp og niður og var hörku duglegur. Einnig átti hann hornspyrnuna í öðru marki Njarðvíkur!
Atvikið
Þegar Joacim Holtan kom inná og var eini leikmaður Aftureldingar sem ætlaði sér að skora enda var Dominik Radic búinn að jafna hann í mörkum á tímabilinu.
Hvað þýða úrslitin?
Skipta litlu fyrir Aftureldingu sem voru eðlilega komnir með hausinn á Laugardalsvöll. Njarðvík hinsvegar enda deildinna í 5.sæti sem þýðir að þeir mæta Þrótti í undanúrslitum umspilsins um að komast upp í Bestu deildina!
Vondur dagur
Úfff það var enginn sem átti virkilega slakan leik, ef ég þyrfti að nefna einhvern er það Kristinn Freyr sem fékk eitt dauða færi til að koma Aftureldingu fyrr inn í leikinn. Annars er það enginn sem var áberandi lélegur.
Dómarinn - 9
Ekkert hægt að setja út á Arnar Inga dæmdi leikinn bara vel. enda ekkert rosa erfiður leikur að dæma.



