Fotbolti.net
Besta deildin
Tryggvi Guðmundsson
Besta kvenna
Hásteinsvöllur
ÍBV
ÍBV
2 - 3
Fram
Fram
Allison Patricia Clark 7'1 - 0Allison Grace Lowrey 12'2 - 02 - 128' Hildur María Jónasdóttir2 - 248' Brookelynn Paige Entz2 - 359' Taylor Marie Hamlett
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson

SKÝRSLAN: Fram stal senunni á Hásteinsvelli

Hvað réði úrslitum?

ÍBV fékk draumabyrjun og komust í 2-0 og snemma leiks. Þær voru með öll völd á vellinum fyrsta hálftíma leiksins. Þær hleyptu svo Fram inn í leikinn sem náðu að minnka muninn í fyrri hálfleik. Fram konur voru síðan bara beittari í síðari hálfleik og var mikilvægt fyrir þær að jafna leikinn svona fljótt í seinni hálfleik og skora svo sigurmarkið.

Bestu leikmenn

1. Ashley Brown Orkus

Ég verð eiginlega að gefa Ashley þetta vegna þess að hún átti nokkrar frábærar vörslur í fyrri hálfleik sem hélt Fram inn í leiknum.

2. Taylor Marie Hamlett

Var mjög góð í dag, sérstaklega seinni hálfleik og varnarmenn ÍBV áttu í vandræðum með hana. Hún skoraði svo sigurmark leiksins.

Atvikið

Færið sem Olga fékk áður en Fram skora jöfnunarmarkið. Olga slapp ein í gegn eftir sendingu Allison Clark en Ashley varði vel frá henni. Hún hefði getað komið ÍBV í 3-1 en í staðin skorar Fram jöfnunarmarkið sitt í næstu sókn.

Hvað þýða úrslitin?

ÍBV er áfram í þriðja sæti með 27 stig en Stjarnan getur farið upp fyrir þær með sigri á mánudaginn. Fram verður í neðri hlutanum en þetta var mikilvægur sigur í botnbaráttunni fyrir þær. Þær eru í 7. sæti með 22 stig.

Vondur dagur

Mér fannst enginn eiga eitthvað slæman dag en ég verð að setja Olgu hérna. Hún átti alls ekki slakan leik en færið hennar sem fór forgörðum rétt áður en Fram skora jöfnunarmarkið.

Dómarinn - 8

Fínn leikur hjá Guðmundi. Engin vafaatriði og ekkert út á hann að setja.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.