Fotbolti.net
Elíza Gígja Ómarsdóttir
Lengjudeild karla
Kórinn
HK
HK
2 - 1
Fylkir
Fylkir
Dominik Radic 50'1 - 0Karl Ágúst Karlsson 60'2 - 02 - 171' Nikulás Val Gunnarsson
Dómari: Elías Ingi Árnason
Áhorfendur: 440

SKÝRSLAN: Fá að mætast aftur á sama stað eftir fjóra daga

Hvað réði úrslitum?

Í leik sem var nokkuð jafn heilt yfir gáfu Fylkismenn eiginlega bæði mörkin sem þeir fá á sig. Þórður Ingi gerðist sekur um mistök í fyrra markinu og seinna markið var svo klaufalegt af hálfu Arnórs Breka. Sanngjörn úrslit hefðu mögulega verið gott jafntefli en HK gerðu betur í að refsa þegar þeir fengu tækifæri til

Bestu leikmenn

1. Dominik Radic (HK)

Ótrúlegur í teignum. Skoraði fyrsta mark leiksins og jafnaði þar með Joacim Holtan sem markahæsti leikmaður deildarinnar. Gunnar Heiðar fullyrti það í viðtali eftir leik að hann væri besti leikmaður deildarinnar í sumar en það má hver dæma fyrir sig.

2. Jóhann Þór Arnarsson (HK)

Var gríðarlega öflugur á vinstri kantinum og líklega aðgangsharðasti HK-ingurinn í þessum leik. Lagði upp fyrsta mark leiksins og var heilt yfir kröftugur.

Atvikið

Fyrsta mark HK sem Radic skorar. Það var búið að vera jafnræði með liðunum fram að því og báðir markmenn búnir að eiga góðar vörslur en þarna komst Radic í frábæra stöðu inná teignum sem hann lét ekki bjóða sér tvisvar.

Hvað þýða úrslitin?

Sigur HK verður til þess að umspilið raðast þannig upp að þessi tvö lið mætast aftur í tveggja leikja einvígi í næstu viku. Fyrri leikurinn fer fram í Kórnum á miðvikudaginn og seinni leikurinn í Árbænum á sunnudaginn um næstu helgi.

Vondur dagur

Eins og áður hefur komið fram voru Fylkismenn í gjafastuði. Þórður Ingi leit ansi illa út í fyrsta markinu. Missti boltann klaufalega til Jóhanns Þórs og lét svo leika ansi illa á sig í framhaldinu áður en Jóhann kom boltanum fyrir markið á Radic.

Dómarinn - 8

Mér fannst Elías Ingi og teymið bara vera með þetta í teskeið. Ekki erfiður leikur að dæma í sjálfu sér en mesta hrós sem ég get gefið Elíasi er að ég tók lítið eftir honum. Leikurinn fékk að fljóta vel og gripið var inn í þegar þörf var á.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.