SKÝRSLAN: Sturlað mark en 1-0 er hættuleg staða til að vera í
Hvað réði úrslitum?
1-0 er enginn staða til að halda í í svona langan tíma. Ef maður á að vera extra grimmur þá er færið sem Rúnar Ingi fær til að koma Grindavík í 2-0 eflaust það sem situr eftir í mönnum. En ekki það að þeir fengu alveg tíma og færi til að komast aftur yfir eftir að Ægir jafnaði.
Bestu leikmenn
1. Daníel Karl Þrastarson
Mark sem fellur lið. Hafi heilan helling að sinna varnarlega í bakvarðarstöðunni á móti Arnari Breka sem sótt vel og oft á hann. Fær þetta í dag fyrir orkuna sem hann hafði, 90mín á fullu allan leikinn og GOLAZO
2. Heiðar Snær Ragnarsson
Þetta mark maður minn lifandi! Það er alveg sorglegt að svona mark skuli ekki telja fyrir neitt.
Atvikið
Markið hans Heiðars Snæ er sturlað, en atvik leiksins gæti alveg verið jöfnunarmarkið. Því það hefur hvað mest að segja. Þetta virtist líka voða latur varnarleikur hjá Grindavík en tek ekki af Daníel sem skoraði, hann gerði þetta rugl vel.
Hvað þýða úrslitin?
Bæði liðin gengu frá vellinum horfandi á tímabil í 2.deildinni á næsta ári. Ægir fellur sem neðsta lið deildarinnar með 9stig en Grindavík með 25stig. Einu stigi minna en Völsungur sem kom sér fyrir ofan þá með sigri í sínum leik.
Vondur dagur
Grindavík - Tilfinningin var sú að stuðningfólk Grindavíkur var stressaðra en leikmenn með að vera bara 1-0 yfir. Þegar jöfnunarmarkið kemur síðan byrjar alvöru stressið. Þetta er svo sannarlega vondur dagur fyrir Grindavík því margir hefðu kannski talið þeirra síðasta leik á pappír þægilegastan til að einmitt halda sér í Lengjudeildinni. Fall fyrir félagið er niðurstaðan í dag og það verðskuldar Vondur dagur.
Dómarinn - 5
Mjög erfitt að meta hans frammistöðu, fær þokkalegur því tökin á leiknum missast svolítið í lokinn. Eftir að hafa farið nokkuð kröftugan fyrri hálfleik spjalda lausan, fór að rigna spjöldum í seinni.


