Fotbolti.net
Besta deildin
Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Besta karla
HS Orku völlurinn
Sól og sumar!
Keflavík
Keflavík
1 - 2
Valur
Valur
0 - 136' Jónatan Ingi Jónsson0 - 253' Dagur Orri GarðarssonMarin Mudrazija 69'1 - 2
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

SKÝRSLAN: Örlögin ráðast á morgun hvort það sé efri eða neðri hluti sem bíða

Hvað réði úrslitum?

Valsmenn mættu grimmir til leiks og náðu sanngjarnt forystu í leiknum en þeir höfðu verið að hóta marki áður en þeir náðu forystu. Valsmenn ná að tvöfalda í seinni hálfleik og falla þá svolítið af bensíngjöfinni eftir það sem opnaði dyrnar fyrir Keflavík sem náði þó aðeins að skora eitt mark og þar við sat.

Bestu leikmenn

1. Dagur Orri Garðarsson (Valur)

Skoraði og lagði upp í dag. Var frábær í liði Vals og var að mörgu leyti munurinn á liðunum í dag. Frábær afgreiðsla í markinu sem hann skoraði.

2. Jónatan Ingi Jónsson (Valur)

Skoraði frábært mark til að opna leikinn. Fékk boltann frá Degi Orra og lagði svo bara af stað í frábæran sprett sem endaði með góðu marki.

Atvikið

Annað mark leiksins sem Dagur Orri skoraði fyrir Val. Tryggvi Hrafn átti góða stungu inn á Dag Orra sem leit út fyrir að vera klúðra stöðunni en gerði svo frábærlega og tvöfaldaði forystu Vals.

Hvað þýða úrslitin?

Bæði lið eiga séns á því að vera í efri hlutanum á morgun þegar restin af umferðinni fer fram. Valur þarf að treysta á að KR vinni stórsigur á ÍA (helst með þremur mörkum) og ÍBV vinni Stjörnuna á meðan Keflavík þarf að treysta á að annaðhvort Stjarnan eða ÍA vinni ekki sinn leik.

Vondur dagur

Alpha Conteh átti ekki sinn besta dag í dag úti á vængnum hjá Keflavík. Átti hörku skot í upphafi leiks sem fór rétt framhjá en eftir það þá gerðist lítið hjá Alpha.

Dómarinn - 8

Heilt yfir fannst mér þetta bara mjög vel dæmdur leikur. Engar stórar ákvarðanir sem þurfti að taka en gott utanumhald á leiknum heilt yfir.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.