A. Smith
Adam Smith (Bournemouth) fær gult spjald fyrir gróft brot.J. Ramsey
Mark! Newcastle United 2, Bournemouth 2. Jacob Ramsey (Newcastle United) hægri fótar skot úr miðjum teig í neðra hægra hornið eftir fast leikatriði.A. Truffert
Adrien Truffert (Bournemouth) fær gult spjald fyrir gróft brot.J. Kluivert
Justin Kluivert (Bournemouth) fær gult spjald fyrir gróft brot.Y. Wissa
Yoane Wissa (Newcastle United) fær gult spjald.H. Barnes (stoðsending: L. Hall)
Stórglæsilegt mark! Newcastle United 1, Bournemouth 2. Harvey Barnes (Newcastle United) hægri fótar skot af vinstri hlið teigs í efra hægra hornið. Stoðsending: Lewis Hall. - Stórglæsilegt mark!M. Thiaw (sjm)
Sjálfsmark: Malick Thiaw, Newcastle United. Newcastle United 0, Bournemouth 2. Afskaplega slysalegt.A. Elanga
Anthony Elanga (Newcastle United) fær gult spjald fyrir gróft brot.M. Tavernier
Mark! Newcastle United 0, Bournemouth 1. Marcus Tavernier (Bournemouth) vinstri fótar skot af stuttu færi í efra vinstra hornið.Þjóðverjinn Matthias Jaissle stillir upp óbreyttu byrjunarliði Newcastle frá 2-0 sigrinum á Tottenham.
Belgíski vængmaðurinn Matias Fernandez-Pardo er hins vegar í hópnum í fyrsta sinn eftir að hafa komið frá Lille fyrir 51,4 milljónir punda undir lok félagaskiptagluggans. Þar lék hann með íslenska landsliðsmanninum Hákoni Arnari Haraldssyni.
Marco Rose gerir eina breytingu á byrjunarliði Bournemouth. Tyler Adams kemur inn á miðjuna í stað Lewis Cook.
Bournemouth er ósigrað í síðustu átta viðureignum liðanna.
Newcastle: Hornicek, Dedic, Thiaw, Botman, Hall, Miley, Gonzalez, Elanga, Willock, Barnes, Wissa
Bournemouth: Petrovic, Smith, Hill, Silva, Truffert, Adams, Scott, Rayan, Kluivert, Tavernier, Evanilson

Ákefð og pressa verða væntanlega áberandi í dagskipuninni í hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar, þegar Newcastle fær Bournemouth í heimsókn á St James’ Park. Þar mætast tveir þýskir stjórar sem báðir koma úr Red Bull íþróttasamsteypunni.
Matthias Jaissle, nýr stjóri Newcastle, er fyrrum stjóri Red Bull Salzburg og Marco Rose sem stýrir Bournemouth var líka með Salzburg, og nýlega RB Leipzig.
„Við erum með sömu hugmynd um hvernig við viljum spila fótbolta," segir Jaissle sem tók við Newcastle þegar Eddie Howe hætti óvænt í sumar.
„Ég og Matthias unnum í mörg ár í Red Bull kerfinu. Allir vita hvernig við vinnum, það sést bersýnilega. Hann er góður þjálfari og hefur komið sinni hugmyndafræði snöggt í lið sitt hjá Newcastle. Liðið spilar af ákefð og eru með pressumunstur sem er augljóslega öðruvísi en það var áður," segir Rose.
Newcastle er með fjögur stig úr fyrstu tveimur leikjum sínum en Bournemouth hefur eitt.

Laugardagur
11:30 Newcastle - Bournemouth
14:00 Brentford - Sunderland
14:00 Brighton - Leeds
14:00 Fulham - Crystal Palace
14:00 Man City - Coventry
14:00 Nott. Forest - Tottenham
16:30 Hull City - Aston Villa
Sunnudagur
13:00 Everton - Man Utd
15:30 Arsenal - Chelsea

Þjóðverjinn Marco Rose, stjóri Bournemouth, er kampakátur með að hafa haldið lykilmönnunum Alex Scott og Eli Junior Kroupi í sínum röðum.
„Sem stjóri segi ég takk kærlega við eigendur félagsins. Þetta eru jákvæð skilaboð til allra," segir Rose en félagaskiptamarkaðnum var lokað í vikunni.
Scott er 23 ára miðjumaður og Kroupi 20 ára framherji sem báðir eru eftirsóttir af stærri félögum.
„Strákarnir gera sér grein fyrir því að það er góð hugmynd að vera hér áfram og taka eitt ár í viðbót."
Bournemouth, sem er með eitt stig eftir tvær umferðir, heimsækir Newcastle í hádegisleiknum á laugardaginn.



