Fotbolti.net
Hafþór Örn Laursen
Hafþór Örn Laursen
2. deild karla
BIRTU völlurinn
Haukar
Haukar
1 - 2
Selfoss
Selfoss
0 - 15' Brynjar Bergsson0 - 233' Frosti BrynjólfssonTómas Atli Björgvinsson 46'Daði Snær Ingason 71'1 - 2
Dómari: Arnar Þór Stefánsson

SKÝRSLAN: Haukar meistarar og Selfoss með annan fótinn í Lengjudeildinni

Hvað réði úrslitum?

Held það hafi verið bara þannig að Selfyssingar nýttu færin sín betur. Haukar hefðu klárlega átt að vera búnir að skora nokkur mörk í viðbót en einhvern veginn varð ekkert úr því.

Bestu leikmenn

1. Frosti Brynjólfsson

Skoraði bæði mörk Selfyssinga og þau voru bæði frábær, sérstaklega seinna markið!

2. Daði Snær Ingason

Fyrirliði Haukanna stóg varla feilskref í dag fannst mér, var alls staðar og náði markinu hjá Haukum. Hann hefði hæglega getað skorað 1-2 í viðbót.

Atvikið

Verð að setja það á seinna gula spjaldið hjá Tómas Atla. Þetta hlýtur eiginlega að vera íslandsmet, dómarinn flautar leikinn á og ekki nema 10 sekúndum seinna flautar dómarinn og gefur honum seinna spjaldið!

Svo auðvitað er hægt að setja það á þegar Daði Snær lyftir bikarnum eftir 7 ára bið í 2. deild. Falleg stund sem margir munu ekki gleyma og stund sem þeir eiga svoa sannarlega skilið!

Hvað þýða úrslitin?

Haukar urðu deildarmeistarar eftir leik sinn í seinustu umferð gegn Víkingi Ó., og því ekki mikið til að spila upp á nema að hafa fleiri stig milli liðanna!

Selfoss situr enn í 2. sæti og eru þremur stigum fyrir ofan Kára í 3. sæti. Selfoss keppir við KFG heima á meðan Kári fær Hauka í heimsókn, þannig þetta verður svo sannarlega spennandi lokaumferð!

Vondur dagur

Verð að setja það á Tómas Atla. Skil ekki af hverju hann fer í þessa tæklingu í seinna spjaldinu, og kom liði sínu í smá klípu. Ég held að ef hann hefði haldið sér inná og ekki fengið annað spjald, hefðu Haukar geta komið til baka og jafnað þetta og jafnvel sigrað þá!

Dómarinn - 5

Dómarinn missti soldið tökin í fyrri hálfleik. Tómas Atli var tekinn niður í teig Selfyssinga. Allt varð vitlaust og sömuleiðis þegar Viðar fer niður í teig Hauka í seinni hálfleik. Sömuleiðis fékk Pablo verðskuldað gult spjald fyrir glæfralega tæklingu, en á hinn bóginn tveimur mínútum fyrr var gerð nákvæmlega eins tækling á leikmann Hauka og ekkert dæmt. Dómarinn var þónokkuð betri í fyrri hálfleik samt. Margt áhugavert í þessum dómum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.