Fotbolti.net
Eyþór Bjarnason
Lengjudeild karla
Kerecisvöllurinn
10 sitga hiti, logn, rigning á köflum
Vestri
Vestri
0 - 2
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 157' Magnús Þórðarson71' Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson (misnotað víti)0 - 286' Örn Bragi Hinriksson
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Áhorfendur: 150

SKÝRSLAN: Þróttur endar í öðru sæti

Hvað réði úrslitum?

Þróttur voru með meiri gæði í dag og betri á flestum sviðum leiksins. Vestri voru tempólausir og hálf áhugalausir lengst af. Þróttur vann verðskuldað og hefðu getað unnið stærra og fara á góðu skriði inn í umspilið.

Bestu leikmenn

1. Örn Bragi Hinriksson

Frábær í dag. Mark og stoðsending og var ógnandi allan leikinn.

2. Magnús Þórðarson

Kemur Þrótti á bragðið og var sí ógnandi. Frábær innkoma og erfitt fyrir Sigurvin að byrja honum ekki í umspilinu.

Atvikið

Fyrsta markið hjá Magnúsi brýtur upp leikinn og eftir það var þetta aldrei spurning. Benedikt varði vítið vel en það telur lítið í 2:0 tapi.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttur tryggja sér 2 sætið og fara á skriði inn í umspilsleikina við Njarðvík. Vestri endar í 10 sæti deilarinnar.

Vondur dagur

Vestra liðið í heild fyir utan þá Benedikt og Albert sem voru flottir í dag. Þessi leikur endurspeglaði tímabilið kraftlaust og lítill áhugi fyrir hlutunum. Liðið endar í 10 sæti og endar tímabilið skelfilega.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.