Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25093 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR24.10.2025, 16:49

Benítez orðinn stjóri Sverris Inga (Staðfest)

Rafael Benítez, fyrrum stjóri Liverpool og Real Madrid, hefur verið ráðinn stjóri Panathinaikos á Grikklandi og er launahæsti stjóri í sögu gríska boltans. Hann gerði tveggja ára samning að verðmæti 8 milljónum evra en með liðinu spilar íslenski landsliðsmiðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason.

FRÉTTIR24.10.2025, 14:09

Lárus Orri gerir nýjan tveggja ára samning við ÍA (Staðfest)

Lárus Orri Sigurðsson hefur gert nýjan tveggja ára samning við ÍA og um að vera aðalþjálfari liðsins til loka keppnistímabilsins 2027. Lárus tók við ÍA í erfiðri stöðu í sumar en liðið fór á ótrúlegt skrið og er búið að tryggja áframhaldandi veru í Bestu deildinni þegar lokaumferðin er eftir. Hér að neðan má sjá tilkynningu ÍA:

FRÉTTIR23.10.2025, 11:24

Jonas Gemmer yfirgefur ÍA (Staðfest)

Danski miðjumaðurinn Jonas Gemmer hefur yfirgefið ÍA. Hann óskaði eftir því við ÍA að fá að yfirgefa félagið eftir þetta tímabil af persónulegum ástæðum og félagið hefur orðið við þeirri ósk. Gemmer gekk í raðir ÍA í sumarglugganum og kom við sögu í þremur leikjum í júlí og ágúst en hefur ekki verið í hópnum í síðustu sex leikjum.

FRÉTTIR22.10.2025, 18:53

Alli Jói tekur við Þór/KA (Staðfest)

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson er nýr þjálfari Þórs/KA í Bestu deildinni en frá þessu er greint á vef félagsins í dag. Hann skrifaði undir samning til þriggja ára.

FRÉTTIR21.10.2025, 23:39

Alli Jói hættur með Völsung (Staðfest)

Völsungur tilkynnti rétt í þessu að Aðalsteinn Jóhann Friðriksson væri hættur með liðið og róar á önnur mið. Aðalsteinn eða Alli eins og hann er yfirleitt kallaður, þjálfaði lengi hjá Völsungi. Hann var lengi vel þjálfari hjá yngri flokkum félagsins. Árið 2020 tók hann við kvennaliði félagsins, liðið var þá í 1. deild en hefur verið í 2. deild síðan. Í fjórum af þessum fimm á tímabilinum hefur liðið verið aðeins einu sæti frá því að komast upp afturr.

FRÉTTIR21.10.2025, 19:44

Jakob Byström áfram hjá Fram (Staðfest) - Valur hafði áhuga

Jakob Byström, framherji Fram, hefur skrifað undir nýjan samning við Fram. Samningurinn er í gildi út árið 2027. Byström gekk til liðs við Fram frá Svíþjóð snemma á þessu ári. Hann hefur spilað 21 leik og skorað sjö mörk, þar af sex í Bestu deildinnii.

FRÉTTIR21.10.2025, 14:48

Svava Rós leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Svava Rós Guðmundsdóttir birti í dag myndband á <i>Instagram</I> og skrifaði við það <i>Takk fyrir mig Fótbolti</I>. Fótboltaskórnir eru komnir upp í hillu hjá þessum öfluga sóknarmanni sem verður þrítug í næsta mánuði. Hún var síðast á mála hjá bandaríska félaginu Gotham. Hún hefur ekkert spilað síðustu tvö árin, glímdi við meiðsli á mjöðm, fór í aðgerð sumarið 2024 og eignaðist svo í ár sitt fyrsta barn.

FRÉTTIR21.10.2025, 13:00

20 mest lesnu fréttir vikunnar - Pirraðir Frakkar og ljót orð á Meistaravöllum

Það er öll flóran á listanum yfir mest lesnu fréttir vikunnar; Besta deildin, íslenska landsliðið og enski boltinn. Frakkar voru pirraðir eftir jafntelfið á Laugardalsvelli, Guðmundur Andri og Láki Árna áttu í orðaskiptum og Heimir Guðjóns er sagður taka við Fylki. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.

FRÉTTIR21.10.2025, 08:15

Dyche þriðji stjóri Forest á tímabilinu (Staðfest)

Sean Dyche, fyrrum stjóri Burnley og Everton, er formlega orðinn nýr stjóri Nottingham Forest en hann skrifaði undir samning til 2027. Dyche er þriðji stjórinn hjá Forest á þessu tímabili en hann tekur við af Ange Postecoglou sem entist í 39 daga og var rekinn 17 mínútum eftir 3-0 tap gegn Chelsea síðasta laugardag. Nuno Espirito Santo var rekinn eftir þrjá leiki á tímabilinu og Postecoglou ráðinn en hann náði ekki að vinna neinn af þeim átta leikjum sem hann stýrði.

FRÉTTIR21.10.2025, 06:00

Pope áfram hjá Newcastle (Staðfest)

Nick Pope markvörður Newcastle United hefur staðfest að félagið sé búið að virkja eins árs framlengingu á samningi hans.

FRÉTTIR20.10.2025, 16:00

Rangers kynnir Röhl (Staðfest) - „Krafa á úrslit samstundis“

Stjóraleit skoska stórliðsins Rangees er lokið en Danny Röhl, fyrrum stjóri Sheffield Wednesday, hefur verið ráðinn. Röhl er 36 ára og var í þjálfarateymi Bayern München og þýska landsliðsins. Rangers er í sjötta sæti skosku úrvalsdeildarinnar og mætir Frey Alexanderssyni og lærisveinum í Brann í Evrópudeildinni á fimmtudag. Russell Martin var rekinn þann 5. otóber eftir aðeins 17 leiki með stjórnartaumana.

FRÉTTIR20.10.2025, 14:05

Dóri Árna rekinn (Staðfest) - Ólafur Ingi tekinn við

Breiðablik tilkynnti rétt í þessu þau tíðindi, sem Fótbolti.net sagði frá fyrr í dag, að félagið væri búið að ganga frá starfslokum við Halldór Árnason. Hann var þjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu, var á sínu öðru tímabili með liðið. Hann kom fyrst til félagsins árið 2019 og var fyrstu árin aðstoðarþjálfari Óskars Hrafns Þorvaldssonar. Á síðasta tímabili gerði hann Breiðablik að Íslandsmeisturum. <i>„Á þessum sex árum hefur Halldór verið risastór hluti af velgengni og uppgangi félagsins. Undir hans stjórn varð félagið Íslandsmeistari 2024 og tryggði sér þátttöku í Sambandsdeild Evrópu 2025,"</I> segir í tilkynningunni. Þar segir einnig að Ólafur Ingi Skúlason hafi verið ráðinn þjálfari liðsins. Ólafur Ingi er fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður sem þjálfaði U21 ára landsliðið í eitt og hálft ár og var þar á undan með U19. Ekki er greint frá því hversu langur samningur Ólafs er. Fyrsti leikur Ólafs sem þjálfari Breiðabliks verður líklega gegn finnska liðinu KuPS á fimmtudag í Sambandsdeildinni.

FRÉTTIR20.10.2025, 09:15

Potter reynir að koma Svíum á HM (Staðfest)

Graham Potter hefur verið kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Svíþjóðar. Hann skrifaði undir stuttan samning og mun reyna að rétta liðið við og vonast eftir því að komast á HM 2026. Svíþjóð á ekki lengur möguleika á að vinna sinn riðil í undankeppninni en gæti samt komist á HM þrátt fyrir að ná ekki öðru sætinu. Svíþjóð gæti komist í umspil vegna árangurs síns í Þjóðadeildinni þar sem liðið vann sinn riðil.

FRÉTTIR19.10.2025, 12:09

Sonja Björg í Val (Staðfest)

Sonja Björg Sigurðardóttir er gengin í raðir Vals frá Þór/KA en þetta kemur fram í tilkynningu frá Val í dag.

FRÉTTIR17.10.2025, 16:00

Þrír leikmenn ekki áfram á Akureyri (Staðfest)

Þór/KA greindi frá því í dag að þrír leikmenn yrðu ekki áfram hjá félaginu. Báðir erlendu leikmenn liðsins, Ellie Moreno og Jessica Berlin, verða ekki áfram hjá félaginu. Jessica er markvörður sem stóð vaktina í sumar og Ellie er sóknarsinnaður leikmaður sem skoraði eitt mark á tímabilinu. Þá snýr Henríetta Ágústsdóttir, lánsmaður Stjörnunnar, aftur í Garðabæinn.

FRÉTTIR16.10.2025, 19:50

Ray Anthony ráðinn þjálfari Grindavíkur (Staðfest)

Ray Anthony Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari Grindavíkur. Hann skrifar undir tveggja ára samning. Hann tekur við af Antoni Inga Rúnarssyni og Marko Valdimar Stefánssyni sem stýrðu liðinu síðustu tvo leiki sumarsins og tókst að forðast fall með góðum sigri gegn ÍR. Anton Ingi og Marko Valdimar voru fengnir inn til þess að taka við af Haraldi Árna Hróðmarssyni sem var rekinn undir lok deildartímabilsins eftir óviðunandi árangur að mati stjórnar. Marko Valdimar verður aðstoðarþjálfari og Milan Stefán Jankovic, pabbi Marko, verður einnig í teyminu. Ray Anthony spilaði með Grindavik frá 1998 til 2012. Hann spilaði tvo landsleiki fyrir U21 landslið Íslands og einn A-landsleik fyrir hönd Filippseyja. Hann þjálfaði kvennalið Grindavíkur frá 2017-2020 og Reyni Sandgerði frá 2022 en liðið hafnaði í 5. sæti 3. deildarinnar síðasta sumar.

FRÉTTIR16.10.2025, 17:41

Slúðrið reyndist rétt - Jóhann tekur við Þrótti (Staðfest)

Jóhann Kristinn Gunnarsson hefur verið ráðinn þjálfari Þróttar í Bestu deild kvenna. Þessar fréttir koma ekki á óvart en Fótbolti.net greindi frá því fyrir viku að líkur væru á að þetta myndi gerast. Sá fréttaflutningur fór eitthvað í taugarnar á Jóhanni sem sagði í viðtali: <i>„Ég veit ekki hvort maður eigi að kalla það frétt eða ábendingu um slúður á .net eins og kom í morgun um að ég væri mögulega að fara í Þrótt."</i> En slúðrið reyndist rétt og hann hefur nú verið kynntur hjá Þrótti en á miðvikudag var tilkynnt að hann væri hættur hjá Þór KA.

FRÉTTIR15.10.2025, 18:38

Jóhann Kristinn hættur með Þór/KA (Staðfest)

Jóhann Kristinn Gunnarsson er hættur sem þjálfari Þórs/KA en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í kvöld. Jóhann Kristinn stýrði liðinu í átta tímabil. Hann tók fimm tímabil frá 2012 til 2016 þar sem liðið varð meðal annars Íslandsmeistari og komst í bikarúrslit.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.