Fer til Sádi-Arabíu fyrir 25 milljónir evra (Staðfest)
Sádi-arabíska félagið Al Ahli hefur gengið frá kaupum á franska U21 landsliðsmanninum Valentin Atangana frá Reims fyrir 25 milljónir evra.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24391 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Sádi-arabíska félagið Al Ahli hefur gengið frá kaupum á franska U21 landsliðsmanninum Valentin Atangana frá Reims fyrir 25 milljónir evra.
Pisa eru nýliðar í efstu deild á Ítalíu og styrktu leikmannahópinn sinn í sumarglugganum.
Franska stórveldið Olympique de Marseille krækti í hvorki meira né minna en 16 leikmenn í sumarglugganum.
Leicester City er búið að staðfesta komu Fran Vieites til félagsins á frjálsri sölu frá Real Betis.
Enska úrvalsdeildarfélagið Fulham krækti í sænska framherjann Jonah Kusi-Asare úr röðum FC Bayern undir lok félagaskiptagluggans.
Lára Kristín Pedersen tilkynnti í vikunni að skórnir væru komnir upp í hillu, hennar leikmnannaferli er lokið. Lára er 31 árs miðjumaður sem er uppalin hjá Aftureldingu og lék einnig með Stjörnunni, Þór/KA, KR, Val, Napoli, Fortuna Sittard og síðast Club Brugge á sínum ferli. Lára lék þrjá A-landsleiki á sínum ferli og 32 leiki fyrir yngri landsliðin. Hún varð á sínum ferli fimm sinnum Íslandsmeistari, þrisvar sinnum bikarmeistari og tvisvar meistari meistaranna. Hér að neðan má sjá kveðju Láru á Instagram og nokkrar myndir af hennar ferli.
Brasilíski vængmaðurinn Willian hefur skrifað undir eins árs samning við Gremio í heimalandinu eftir að hafa yfirgefið Fulham í sumar eftir að samningur hans við félagið rann út.
Serbneski miðjumaðurinn Milan Aleksic er genginn til liðs við Cracovia í Póllandi frá Sunderland á láni út tímabilið. Það er kaupmöguleiki fyrir Cracovia í samningnum.
Franski miðjumaðurinn Ismael Bennacer er genginn til liðs við Dinamo Zagreb í Króatíu frá AC Milan. Hann fer til liðsins á láni en Fabrizio Romano greinir frá því að það sé kaupmöguleiki í samningnum.
Franska landsliðskonan Grace Geyoro hefur verið keypt til London City Lionesses frá Paris St-Germain fyrir 1,4 milljónir punda (rúmar 232 milljónir íslenskra króna). Hún er þar með orðin dýrasti leikmaður sögunnar í kvennaflokki en kaupin slá met sem stóð yfir í einn mánuð, þegar Orlando Pride í Bandaríkjunum greiddi Tigres UANL 1,1 milljón punda fyrir mexíkóska vængmanninn Lizbeth Ovalle.
Serbneski framherjinn Alexandar Mitrovic er búinn að rifta samningi sínum við Al-Hilal í Sádi-Arabíu og er genginn til liðs við Al-Rayyan í Katar. Mitrovic er þrítugur en hann gekk til liðs við Al-Hilal frá Fulham árið 2023 en hann skoraði 68 mörk og lagði upp 15 í 79 leikjum.
Franski miðvörðurinn Kurt Zouma hefur samið um að leika með rúmenska félaginu CFR Cluj næstu tvö árin.
Sigurður Þór Reynisson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Fylkis en liðið er fallið niður í 2. deild. Bjarni Þórður Halldórsson og Elías Hlynur Lárusson voru reknir í síðasta mánuði. Fylkir er í næst neðsta sæti Lengjudeildarinnar með átta stig eftir sautján umferðir af átján og örlög liðsins ráðin. Liðið féll úr Bestu deildinni í fyrra og er nú fallið niður í 2. deild.
Framherjinn efnilegi Dagur Orri Garðarsson hefur gert fimm ára samning við Val. Dagur sem er nýorðinn tvítugur kemur til liðsins frá Stjörnunni í Garðabæ en hann hefur leikið á láni hjá HK í sumar þar sem hann hefur skorað 11 mörk í Lengjudeildinni. Dagur verður áfram hjá HK út tímabilið en samningur hans við Val tekur gildi 1. janúar 2026. Samningur hans við Stjörnuna rennur út eftir tímabilið.
Chelsea hefur lánað enska miðjumanninn Kiano Dyer til hollenska félagsins Volendam út tímabilið.
Lettneska fótboltakonan Olga Sevcova hefur framlengt við ÍBV út næsta tímabil en frá þessu er greint á <i>ÍBVSport</i> í dag.
Kasper Dolberg hefur gengið til liðs við Ajax frá Anderlecht fyrir 10 milljónir evra.
Kelechi Iheanacho hefur samið við skoska stórveldið Celtic. Nígeríski sóknarmaðurinn gerir eins árs samning við liðið, með ákvæði um að framlengja um eitt ár.
Ilkay Gündogan hefur yfirgefið Manchester City í annað sinn og samið við Tyrklandsmeistara Galatasaray á frjálsri sölu.
Svissneski varnarmaðurinn Manuel Akanji er kominn til ítalska liðsins Inter á láni frá Manchester City út tímabilið.