Hamburg kaupir miðjumann Arsenal (Staðfest)
HSV Hamburg hefur fest kaup á Sambi Lokonga, miðjumanni Arsenal. Kaupverðið nemur um 2.5 milljónum punda.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25096 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
HSV Hamburg hefur fest kaup á Sambi Lokonga, miðjumanni Arsenal. Kaupverðið nemur um 2.5 milljónum punda.
Bandaríski landsliðsmaðurinn Yunus Musah er kominn til Atalanta á láni frá AC Milan.
Atlético Madrid hefur fengið argentíska kantmanninn Nicolas Gonzales á láni frá Juventus.
Ítalski bakvörðurinn Emerson Palmieri er farinn frá West Ham og genginn í raðir Marseille í Frakklandi.
Þýska félagið Stuttgart hefur landað marokkóska sóknartengiliðnum Bilal El Khannouss frá enska B-deildarfélaginu Leicester City á láni út tímabilið.
Enska úrvalsdeildarfélagið Bournemouth hefur fest kaup á serbneska táningnum Veljko Milosavljevic frá Rauðu Stjörnunni, en þetta kemur fram í tilkynningu frá enska félaginu í dag.
Hollywood-lið Wrexham hefur fengið enska miðjumanninn Ben Sheaf frá Coventry City fyrir 6,5 milljónir punda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Wrexham í dag.
Nígeríski framherjinn Tolu Arokodare er genginn til liðs við Wolves frá belgíska félaginu Genk fyrir tæpar 24 milljónir punda.
Argentínski vængmaðurinn Facundo Buonanotte er mættur til Chelsea á láni frá Brighton.
Paragvæski sóknartengiliðurinn Julio Enciso er genginn í raðir franska félagsins Strasbourg frá Brighton.
Elísa Lana Sigurjónsdóttir hefur verið seld frá FH til sænska félagsins Kristianstad. Guðni Eiríksson, þjálfari FH, staðfestir þetta við Fótbolta.net en hún hefur fengið félagaskipti á vef KSÍ og verður því ekki með Breiðabliki á fimmtudaginn.
Sænski varnarmaðurinn Victor Lindelöf hefur skrifað undir samning til tveggja ára við Aston Villa, með möguleika á að framlengja um ár til viðbótar.
Bayer Leverkusen hefur tekið ákvörðun um að reka Erik ten Hag en hann tók við liðinu í sumar. Hann stýrði liðinu aðeins í tveimur leikjum í þýsku úrvalsdeildinni en félagið hafði enga trú á honum eftir það. Það voru strax farnar að myndast stórar efasemdir eftir aðeins einn leik.
Bournemouth er búið að sækja Alex Jimenez, tvítugan Spánverja frá AC Milan. Jimenez kemur á árs láni með kaupskyldu að láninu loknu.
Bakvörðurinn Tariq Lamptey er orðinn leikmaður Fiorentina. Ítalska félagið kaupir hann frá Brighton fyrir 6 milljónir punda. Lamptey, sem er 24 ára, átti að renna út á samningi í sumar en framlengdi um eitt ár. Nú er hann farinn til Fiorentina á Ítalíu, þar sem hann verður liðsfélagi Alberts Guðmundssonar.
Brasilíski markvörðurinn John Victor er genginn til liðs við Nottingham Forest frá Botafogo í heimalandinu. Hann skrifar undir þriggja ára samning.
Það stefnir í einhvern rosalegasta gluggadag síðari ára í dag. Fótbolti.net verður á vaktinni í allan dag og mun fylgjast með öllu því helsta. Stærst er það náttúrulega að Alexander Isak verður leikmaður Liverpool. Englandsmeistararnir komust loksins að samkomulagi við Newcastle í gær um 130 milljón punda kaupverð. Isak verður dýrasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.
Danski markvörðurinn Christoffer Petersen er genginn til liðs við Norrköping sem leikur í efstu deild í Svíþjóð. Petersen lék með HK síðasta sumar en hann kom við sögu í 11 leikjum í Bestu deildinni. Hann kom til Íslands frá Kolding í Danmörku en hann fór aftur þangað síðasta vetur en er nú kominn til Svíþjóðar.
Tomasz Luba hefur verið ráðinn þjálfari Víkings Ólafsvíkur en hann tekur formlega við liðinu eftir tímabilið. Hann verður einnig yfirþjálfari Víking/Reynis. Hann tekur við af Brynjari Kristmundssyni sem tilkynnti fyrr í sumar að hann muni hætta þjálfun liðsins eftir tímabiliið.
Kostas Tsimikas er genginn til liðs við Roma á láni frá Liverpool út leiktíðina.