Fotbolti.net
01.09.25 - 12:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Elísa Lana keypt til Kristianstad (Staðfest)

Elísa Lana hefur verið frábær með FH í sumar.

Elísa Lana hefur verið frábær með FH í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Elísa Lana Sigurjónsdóttir hefur verið seld frá FH til sænska félagsins Kristianstad.

Guðni Eiríksson, þjálfari FH, staðfestir þetta við Fótbolta.net en hún hefur fengið félagaskipti á vef KSÍ og verður því ekki með Breiðabliki á fimmtudaginn.
Elísa Lana hefur átt frábært sumar og sprungið út í liði FH sem fór í bikarúrslitaleik og er í titilbaráttu.

Guðni segir við Fótbolta.net að FH hafi haft engan áhuga á því að standa í vegi fyrir Elísu þegar þetta spennandi tækifæri kom upp.

Elísa Lana er uppalin í FH og hefur leikið fyrir félagið allan sinn feril en núna fer hún í mikið Íslendingafélag. Guðný Árnadóttir og Alexandra Jóhannsdóttir spila einnig með Kristianstad.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.