Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24392 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR06.08.2025, 06:00

Fyrrum leikmaður Liverpool til Derby (Staðfest)

Enski miðjumaðurinn Bobby Clark er genginn til liðs við Derby á láni frá RB Salzburg. Clark hefur ekki verið lengi hjá Salzburg því hann gekk til liðs við félagið frá Liverpool síðasta sumar fyrir tíu milljónir punda. Hann á fjögur ár eftir af samningi sínum hjá austurríska félaginu.

FRÉTTIR05.08.2025, 19:30

Fyrrum leikmaður Þróttar til Middlesbrough (Staðfest)

Hægri bakvörðurinn Callum Brittain er genginn til liðs við Middlesbrough frá Blackburn. Þessi 27 ára gamli Englendingur gerir fjögurra ár asamning við Middlesbrough. Hann lék í þrjú ár hjá Blackburn en hann var liðsfélagi Arnórs Sigurðssonar sem yfirgaf Blackburn og gekk til liðs við Malmö í vetur.

FRÉTTIR05.08.2025, 18:11

Lyon kaupir miðjumann frá Liverpool (Staðfest)

Enski miðjumaðurinn Tyler Morton er genginn til liðs við Lyon frá Liverpool fyrir 15 milljónir punda. Morton er 22 ára gamall og er uppalinn hjá Liverpool. Hann spilaði 14 leiki fyrir liðið. Hann var áður á láni hjá Blackburn og Hull í Championship deildinni en var hjá Liverpool á síðustu leiktíð þar sem hann kom við sögu í fimm leikjum. Samkvæmt heimildum Sky Sport fær Liverpool 20 prósent af næstu sölu.

FRÉTTIR05.08.2025, 17:30

Andros Townsend til Tælands (Staðfest)

Andros Townsend, sem lék lengi í ensku úrvalsdeildinni, hefur skrifað undir samning við Kanchanaburi Power í Tælandi. Þetta kemur til með að vera sextánda félagið sem hann spilar fyrir á ferli sínum.

FRÉTTIR05.08.2025, 16:30

Ahmedhodzic til Feyenoord (Staðfest)

Feyenoord hefur fengið til sín varnarmanninn Anel Ahmedhodzic frá Sheffield United og gerði hann fjögurra ára samning við hollenska félagið. Feyenoord kaupir þennan 26 ára leikmann á 18 milljónir evra og gæti spilað á morgun gegn Fenerbahce í forkeppni Meistaradeildarinnar.

FRÉTTIR05.08.2025, 16:03

Keflavík fær Viktor Elmar frá Breiðabliki (Staðfest)

Keflavík hefur krækt í Viktor Elmar Gautason frá Breiðabliki. Hann gerir samning við Keflavík sem gildir til lok ársins 2028. Viktor Elmar, sem er 21 árs, getur bæði leikið sem bakvörður og kantmaður.

FRÉTTIR05.08.2025, 15:57

Nikolaj Hansen framlengir við Víking (Staðfest)

<i>&bdquo;Kæru Víkingar. Knattspyrnudeild Víkings tilkynnir með mikilli Hamingju að okkar eigin Nikolaj Hansen hefur framlengt samning sinn við félagið út árið 2027,"</I> segir í tilkynningu Víkinga núna rétt í þessu. Samningur Nikolaj var að renna út eftir tímabilið og voru önnur félög farin að sýna honum áhuga.

FRÉTTIR05.08.2025, 15:00

Víkingar fá bandarískan sóknarmann (Staðfest)

Víkingur Reykjavík hefur styrkt sig fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna því Ashley Clark er búin að semja við félagið. Clark er 31 árs gömul og spilar sem sóknarmaður.

FRÉTTIR05.08.2025, 11:30

Sandgerðingar fengu Eista og þrjá aðra (Staðfest) - Njarðvík kallar Daða til baka

Sandgerðingar náðu að þétta raðirnar í lok félagaskiptagluggans. Reynir er í 4. sæti 3. deildar og á möguleika á að fara aftur upp í 2. deild eftir að hafa fallið á síðasta tímabili. Markvörðurinn Bartosz Matoga er komin á láni frá grönnunum í Njarðvík. Hann hefur spilað tvo leiki með Njarðvík í sumar og varði mark Árbæjar í 3. deildinni í fyrra. Koma hans sendi af stað smá markmannskapal. Ingólfur Hávarðason fór frá Sandgerðingum til Álftaness og Njarðvík kallaði Daða Fannar Reinhardsson til baka frá Árbæ.

FRÉTTIR04.08.2025, 11:56

Tómas Bent seldur til Hearts (Staðfest)

Valur hefur staðfest söluna á Tómasi Bent Magnússyni til Hearts í Skotlandi en Hlíðarendafélagið tilkynnti þetta á heimasvæði sínu á Facebook í dag.

FRÉTTIR03.08.2025, 20:08

Önnur þjálfarabreyting í Árbænum (Staðfest)

Stjórn knattspyrnudeildar Fylkis og meistaraflokksráð kvenna hefur tekið þá ákvörðun að láta Bjarna Þórð Halldórsson, þjálfara og Elías Hlyn Lárusson, aðstoðarþjálfara, taka pokana sína. <i>„Stjórn hefur þegar hafið vinnu við að finna nýjan þjálfara til að leiða næstu skref í uppbyggingu kvennaknattspyrnu félagsins og mun tilkynna um þá ráðningu á næstunni,"</i> segir í tilkynniingu frá félaginu.

FRÉTTIR03.08.2025, 19:15

Palhinha kominn til Tottenham (Staðfest)

Joao Palhinha er genginn til liðs við Tottenham á láni frá Bayern út tímabilið. Hann snýr aftur í úrvalsdeildina eftir að Bayern keypti hann frá Fulham fyrir tæplega 50 milljónir punda síðasta sumar.

FRÉTTIR03.08.2025, 17:32

Jorrel Hato til Chelsea (Staðfest)

Hollenski varnarmaðurinn Jorrel Hato er genginn til liðs við Chelsea frá Ajax. Kaupverðið er 35,5 milljónir punda en kaupverðið getur hækkað upp í 38,5 milljónir. Hann skrifar undir sjö ára samning.

FRÉTTIR02.08.2025, 19:31

Callum Wilson til West Ham (Staðfest)

West Ham United er búið að ganga frá félagaskiptum Callum Wilson sem kemur á frjálsri sölu úr röðum Newcastle United.

FRÉTTIR02.08.2025, 13:41

Ramsdale til Newcastle (Staðfest)

Enski markvörðurinn Aaron Ramsdale er genginn til liðs við Newcastle United á láni frá Southampton. Skjórarnir greina frá þessu í dag.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.