Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24379 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR22.05.2026, 10:08

Man Utd tilkynnir um nýjan samning við Carrick (Staðfest)

Michael Carrick verður áfram með Manchester United, en hann hefur hafa skrifað undir tveggja ára samning við félagið með möguleika á að framlengja um eitt ár. Carrick tók við United af Ruben Amorim í byrjun árs, rétti úr kútnum og hefur nú tryggt þriðja sætið. Undir stjórn Carrick hefur United unnið ellefu af sextán leikjum sínum. Úrvalsdeildin tilnefndi sex stjóra sem stjóra tímabilsins og var Carrick einn af þeim. Ekkert lið í efstu deild hefur náð í fleiri stig en United frá því Carrick tók við liðinu 13. janúar, en liðið hefur safnað 36 stigum síðan þá.

FRÉTTIR21.05.2026, 17:56

Borja Iglesias tekur við Völsungi (Staðfest)

Völsungur hefur fundið nýjan aðalþjálfara eftir að Patrick De Wilde var rekinn fyrir rúmum mánuði síðan. Sá heitir Borja Martin Iglesias, hann var síðast partur af þjálfarateyminu hjá unglingaliði Eibar og hefur einnig þjálfað hjá Osasuna.

FRÉTTIR21.05.2026, 10:10

ÍA komið með markvörð - Jón Sölvi snýr aftur (Staðfest)

ÍA hefur fengið markvörðinn Jón Sölva Símonarson frá Breiðabliki á undanþágu vegna meiðsla Árna Marinós Einarssonar. ÍA kaupir Jón Sölva af Blikum, en félagið hafði líka reynt að gera það í vetur. Árni meiddist á sunnudag og verður frá næstu sex til átta vikurnar vegna ristarbrots. Þar sem félagaskiptaglugginn er lokaður og varamarkvörður ÍA, Isak Theodor Eidem, er fæddur árið 2009, fékk ÍA undanþágu hjá KSÍ til að fá markvörð inn utan glugga.

FRÉTTIR19.05.2026, 15:46

Jason Daði yfirgefur Grimsby (Staðfest)

Jason Daði Svanþórsson (1999) mun yfirgefa Grimsby þegar samningur hans við félagið rennur út. Þetta staðfestir enska félagið með færslu á samfélagsmiðlum. Jason var í tvö ár hjá félaginu en hann var keyptur frá Breiðabliki sumarið 2024. Hann er eldfljótur kantmaður sem var í algjöru lykilhlutverki þegar Breiðablik varð Íslandsmeistari 2022. Hann er uppalinn í Aftureldingu og hélt í Breiðablik eftir tímabilið 2020.

FRÉTTIR18.05.2026, 14:22

Flick framlengir við Barcelona (Staðfest)

Hansi Flick hefur framlengt samning sinn sem þjálfari Barcelona til ársins 2028 með möguleika um eins árs framlengingu. Flick tók við Barcelona af Xavi sumarið 2024 og hefur hann unnið spænska titilinn í tvígang á fyrstu tveimur tímabilum sínum.

FRÉTTIR17.05.2026, 21:46

Malacia yfirgefur Man Utd (Staðfest)

Hollenski bakvörðurinn Tyrell Malacia mun yfirgefa Manchester United þegar samningur hans rennur út í sumar, en þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni í kvöld.

FRÉTTIR17.05.2026, 08:47

Xabi Alonso tekur við Chelsea (Staðfest)

Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea er búið að staðfesta ráðningu Spánverjans Xabi Alonso. Hann mun taka við sem stjóri liðsins í sumar og skrifar undir fjögurra ára samning þess efnis.

FRÉTTIR15.05.2026, 06:00

Kristófer yfirgefur Triestina (Staðfest)

Kristófer Jónsson verður formlega samningslaus í lok júní þegar samningur hans við ítalska félagið Triestina rennur út. Samningurinn hefði verið lengri en fellur úr gildi þar sem Triestina féll úr C-deildinni í vetur. Liðið endaði í neðsta sæti A-riðils í deildinni. 24 stig voru dregin af liðinu í vetur og ef ekki hefði verið fyrir frádrátinn hefði liðið getað haldið sér uppi með góðu gengi í fallumspilinu. Frádrátturinn var vegna fjárhagsvandræða.

FRÉTTIR12.05.2026, 13:34

Dortmund sækir franskan táning frá Salzburg (Staðfest)

Borussia Dortmund hefur tekið forskot á félagskiptasæluna en liðið hefur sótt franska táninginn Joane Gadou frá FC Salzburg. Gadou, sem er nítján ára hafsent, skrifar undir samning til ársins 2031. Þýski miðillinn Bild greinir frá því að Dortmund hafi greitt tæpar 19 milljónir evra fyrir Gadou.

FRÉTTIR11.05.2026, 00:08

Andri Steinn til KÁ (Staðfest)

Varnarmaðurinn Andri Steinn Ingvarsson er búinn að skrifa undir lánssamning við KÁ og mun leika með liðinu í 3. deildinni í sumar.

FRÉTTIR10.05.2026, 23:02

Haukur Darri aftur í Voga (Staðfest)

Haukur Darri Pálsson er snúinn aftur í Vogana þar sem hann gerir þriggja ára samning við Þrótt eftir eins árs fjarveru.

FRÉTTIR08.05.2026, 17:30

Selfyssingar semja við annan markvörð (Staðfest)

Selfoss tilkynnti í dag að félagið hefði samið við Rökkva Rafn Agnesarson út tímabilið. Samið var við Benjamín Jónsson í síðasta mánuði eftir að Arnór Elí Kjartansson meiddist. Benjamín var í byrjunarliðinu gegn KFA í 1. umferð deildarinnar en fékk að líta rauað spjaldið og verður því í leikbanni þegar Selfoss heimsækir Hvíta riddarann á morgun.

FRÉTTIR08.05.2026, 11:13

Fleiri þekktar stærðir skiptu í KFG (Staðfest)

KFG styrkti sig undir lok gluggans fyrir átökin í 2. deild í sumar. KFG er venslalið Stjörnunnar. Við sögðum frá því í síðasta mánuði þegar Brynjar Gauti Guðjónsson gekk í raðir félagsins og fleiri þekktar stærðir skiptu til félagsins í kjölfarið.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.