Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   mið 20. maí 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Dýrustu félagaskipti í sögu portúgölsku deildarinnar (Staðfest)
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Sporting CP endaði í öðru sæti í portúgölsku deildinni á nýliðnu tímabili og er strax byrjað að styrkja hópinn fyrir næstu leiktíð.

Félagið festi kaup á Rodrigo Zalazar á dögunum og gerði hann að dýrasta leikmanni sem hefur nokkurn tímann skipt á milli portúgalskra félaga.

Sporting borgar 30 milljónir evra fyrir Zalazar sem er 26 ára gamall sóknartengiliður frá Úrúgvæ og gerir fimm ára samning við stórveldið.

Zalazar kemur til félagsins úr röðum Braga sem keypti hann frá Schalke sumarið 2023, fyrir 6 milljónir evra. Hann er með 80 milljóna riftunarákvæði hjá Sporting.

Zalazar átti ótrúlegt tímabil með Braga þar sem hann skoraði 23 mörk og gaf 8 stoðsendingar í 47 leikjum í öllum keppnum. Í fyrra kom hann að 17 mörkum í 30 leikjum.

Þess má geta að Braga festi kaup á hægri bakverði Sporting á sama tíma fyrir 5,5 milljónir evra auk árangurstengdra aukagreiðslna. Sá heitir Diogo Travassos og gerði flotta hluti á láni hjá Moreirense á nýliðnu tímabili.


Slapp
banner
banner