Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   þri 19. maí 2026 15:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jason Daði yfirgefur Grimsby (Staðfest)
Mynd: Grimsby Town
Jason Daði Svanþórsson (1999) mun yfirgefa Grimsby þegar samningur hans við félagið rennur út. Þetta staðfestir enska félagið með færslu á samfélagsmiðlum.

Jason var í tvö ár hjá félaginu en hann var keyptur frá Breiðabliki sumarið 2024.

Hann er eldfljótur kantmaður sem var í algjöru lykilhlutverki þegar Breiðablik varð Íslandsmeistari 2022. Hann er uppalinn í Aftureldingu og hélt í Breiðablik eftir tímabilið 2020.

Tímabilið í ár einkenndist af meiðslum hjá Jasoni en hann kom einungis við sögu í sjö deildarleikjum á tímabilinu eftir að hafa skorað fjögur mörk og lagt upp fjögur í ensku D-deildinni á síðasta tímabili.

Grimsby fór í umspilið um sæti í C-deildinni en tapaði í undanúrslitum gegn Salford.

Jason hefur verið orðaður við bæði KR og Breiðablik.

Slapp
banner