Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 21. maí 2026 18:17
Ívan Guðjón Baldursson
Snýr aftur til Fylkis eftir dvöl í Serbíu (Staðfest)
Kvenaboltinn
Mynd: Fylkir
Marija Radojicic er komin aftur til Fylkis eftir að hafa leikið með Spartak Subotica í efstu deild serbneska boltans í vetur.

Marija er 34 ára sóknarmaður sem á yfir 100 keppnisleiki að baki fyrir Fylki. Hún skoraði 5 mörk í 15 deildarleikjum er Fylkir féll úr Lengjudeildinni í fyrra.

Fylkir stefnir aftur upp um deild og er hægt að búast við að Marija Radojicic raði inn mörkunum í sumar.

Marija leikur með Fylki út sumarið og býst félagið við góðu framlagi frá henni líkt og hún hefur skilað á þeim fimm sumrum sem hún hefur leikið með liðinu.


Slapp
banner
banner