Fotbolti.net
21.05.26 - 17:56
Ívan Guðjón Baldursson

Borja Iglesias tekur við Völsungi (Staðfest)

Borja Iglesias tekur við Völsungi (Staðfest)
Canon

Mynd: Völsungur

Lengjudeildin
Völsungur hefur fundið nýjan aðalþjálfara eftir að Patrick De Wilde var rekinn fyrir rúmum mánuði síðan. Sá heitir Borja Martin Iglesias, hann var síðast partur af þjálfarateyminu hjá unglingaliði Eibar og hefur einnig þjálfað hjá Osasuna.
Borja er 33 ára Spánverji sem flytur á Húsavík fyrir tilstilli góðvinar sins Sergio Parla sem hefur reynst Völsungi mikilvægur síðustu tvö ár.

Parla er miðjumaður og gerði flotta hluti á seinni hluta tímabilanna 2024 og 2025 til að hjálpa Völsungi fyrst að komast upp í Lengjudeildina og svo að halda sæti sínu þar

Hann er ekki að spila með Völsungi í ár en mun í staðinn taka við starfi sem aðstoðarþjálfari.

Borja tekur við af bráðabirgðaþjálfurunum Bjarka Baldvinssyni og Elfari Árna Aðalsteinssyni sem hafa stýrt Völsungi á byrjun nýs tímabils í Lengjudeildinni. Húsvíkingar eru með tvö stig eftir fjórar fyrstu umferðirnar.

„Bjarki og Elfar verða Borja og Parla innan handar en við auðvitað vonumst eftir að sjá Elfar á vellinum sem fyrst," segir meðal annars í tilkynningu frá Völsungi.

Úti er ævintýri - De Wilde rekinn frá Völsungi (Staðfest)
TENGT EFNI

Úti er ævintýri - De Wilde rekinn frá Völsungi (Staðfest)



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.