Fotbolti.net
22.05.26 - 10:08
Kári Snorrason

Man Utd tilkynnir um nýjan samning við Carrick (Staðfest)

Tók við sem bráðabirgðastjóri af Amorim í janúar.

Tók við sem bráðabirgðastjóri af Amorim í janúar.

Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick verður áfram með Manchester United, en hann hefur hafa skrifað undir tveggja ára samning við félagið með möguleika á að framlengja um eitt ár.

Carrick tók við United af Ruben Amorim í byrjun árs, rétti úr kútnum og hefur nú tryggt þriðja sætið.

Undir stjórn Carrick hefur United unnið ellefu af sextán leikjum sínum. Úrvalsdeildin tilnefndi sex stjóra sem stjóra tímabilsins og var Carrick einn af þeim.

Ekkert lið í efstu deild hefur náð í fleiri stig en United frá því Carrick tók við liðinu 13. janúar, en liðið hefur safnað 36 stigum síðan þá.
Carrick þekkir félagið vel en hann lék með United í tólf ár og vann meðal annars fimm Englandsmeistaratitla, Meistaradeildina og FA bikarinn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.