Hürzeler hjá Brighton til 2029 (Staðfest)
Þýski stjórinn Fabian Hürzeler hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Brighton til 2029.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24379 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Þýski stjórinn Fabian Hürzeler hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Brighton til 2029.
Aron Jóhannsson og Orri Sigurjónsson hafa gert félagaskipti yfir í Þrótt. Orri var ráðinn styrktarþjálfari liðsins í janúar en hann spilaði 16 leiki með uppeldisfélaginu sínu Þór þegar liðið vann Lengjudeildina og tryggði sér sæti í Bestu deildinni síðasta sumar.
Félagaskiptaglugginn fyrir lið í Lengjudeildum karla og kvenna lokaði í gær. Völsungur styrkti sig á lokametrunum og fékk tvo markverði. Jochum Magnússon er genginn til liðs við félagið frá Víkingi en hann er efnilegur markvörður. Hann er fæddur árið 2007 en hann kom við sögu í einum leik í Reykjavíkurmótinu með Víkingi í vetur. Hann hefur spilað níu landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.
Tómas Þórðarson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Þrótt Vogum. Tómas er sóknarmaður sem gekk til liðs við félagið frá Dalvík/Reyni. Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir Þrótt þegar liðið vann dramatískan sigur á Haukum í 2. deild um síðustu helgi. Tómas kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmarkið.
Magnús Ingi Þórðarson er genginn í raðir Þróttar frá Fram á láni út tímabilið. Magnús hefur ekki verið í leikmannahópi Fram í síðustu leikjum og var fjallað um það fyrir rúmri viku síðan að hann vildi fara frá félaginu. Samningur hans við Fram rennur út eftir tímabil.
ÍH er búið að staðfesta ráðningu á Jóni Má Ferro sem þjálfara en hann lék 138 leiki fyrir liðið á fótboltaferlinum.
Kári Kristjánsson hefur verið seldur frá FH aftur í uppeldisfélag sitt, Þrótt. FH segir í tilkynningu hafa komist að samkomulagi við Þrótt um kaupverð í dag. Kári, sem er 21 árs miðjumaður, gekk í raðir FH frá Þrótti fyrir þetta tímabil. Hann var ekki í sérlega stóru hlutverki í upphafi móts hjá FH en liðið hefur farið illa af stað á tímabilinu og er með eitt stig að loknum fimm umferðum í Bestu deildinni.
Nýkrýndir Portúgalsmeistarar FC Porto eru búnir að festa kaup á pólska miðverðinum Jakub Kiwior.
Ipswich Town tryggði sér annað sæti Championship deildarinnar á lokadegi deildartímabilsins og fara lærlingar Kieran McKenna því beint aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir að hafa fallið í fyrra.
Edin Terzic hefur verið ráðinn þjálfari Athletic Bilbao og tekur hann við baskneska félaginu í sumar eftir að Ernesto Valverde lætur af störfum sem þjálfari liðsins. Terzic, sem er 43 ára gamall Þjóðverji, skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.
Bandaríski leikmaðurinn Paul Leonard Skoczylas er genginn til liðs við Ægi.
Watford er búið að reka Edward Still úr þjálfarastólnum hjá sér eftir innan við þrjá mánuði í starfi.
Miðjumaðurinn Tareq Shihab hefur gert eins árs samning við ÍR í Lengjudeildinni, en þetta kemur fram á vefsvæði félagsins á Facebook í dag.
Hvíti riddarinn er búinn að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi átök er liðið reynir fyrir sér í 2. deild eftir að hafa unnið 3. deildina í fyrra.
Kolviður Gísli Helgason er búinn að skipta um félag og mun leika með Reyni Sandgerði í sumar eftir að hafa verið hjá Breiðabliki og Augnabliki allan ferilinn hingað til.
Arnar Smári Arnarsson er kominn aftur heim í Kópavoginn eftir að hafa leikið sex leiki með Grindavík í Lengjudeildinni í fyrra.
Afturelding hefur verið að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi keppnistímabil og eru Mosfellingar búnir að næla sér í litháíska landsliðskonu.
Selfoss hefur samið við Benjamín Jónsson (2003) um að leika með liðinu í sumar. Markvörður Selfyssinga, Arnór Elí Kjartansson (2005), meiddist á dögunum og verður frá keppni í einhvern tíma. Benjamín lék með yngri flokkum Vals áður en hann fór yfir í Fram. Þar lék hann einn leik í Bestu deildinni sumarið 2023. Þaðan fór hann til Þróttar í Vogum áður en hann samdi við Þrótt Reykjavík fyrir síðasta tímabil. Selfoss féll úr Lengjudeildinni í fyrra og ætlar sér upp úr 2. deild í sumar. Fyrsti leikur Selfyssinga í deildinni verður á JÁVERK-vellinum klukkan 14:00 á laugardag.
Alexander Veigar Þórarinsson hefur verið ráðinn nýr þjálfari KV og mun stýra liðinu í 3. deild karla í sumar. Orri Fannar Þórisson og Davíð Guðrúnarson hættu sem þjálfarar KV í janúar síðastliðnum.
Markvörðurinn Hrafnhildur Hjaltalín sneri aftur í Víking í gær eftir stutt lán hjá Gróttu. Hrafnhildur er fædd árið 1999 og kemur frá Gróttu þar sem hún spilaði einn leik í Mjólkurbikarnum, í 2-1 tapi gegn Fylki.