Miðjumaðurinn Tareq Shihab hefur gert eins árs samning við ÍR í Lengjudeildinni, en þetta kemur fram á vefsvæði félagsins á Facebook í dag.
Tareq er fæddur árið 2001 og er A-landsliðsmaður Jemen, en á einnig að baki leiki með yngri landsliðum Englands.
Hann lék með Gróttu í Lengjudeildinni árin 2023 og 2024, en síðari hluta árs 2024 fór hann til HK þar sem hann lék sex leiki í Bestu deildinni.
Síðast lék hann með Stallion Laguna í Filippseyjum en þar skoraði hann eitt mark í fjórum leikjum.
Tareq er kominn aftur til Íslands og hefur nú samið um að leika með ÍR-ingum í sumar.
ÍR byrjar Lengjudeildina vel en liðið vann Aftureldingu 7-4 í einum svakalegasta leik sem sést hefur í opnunarumferð deildarinnar. Næsti leikur liðsins er gegn Þrótti í Laugardalnum í kvöld.
Lengjudeild karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. ÍR | 1 | 1 | 0 | 0 | 7 - 4 | +3 | 3 |
| 2. HK | 1 | 1 | 0 | 0 | 4 - 1 | +3 | 3 |
| 3. Fylkir | 1 | 1 | 0 | 0 | 3 - 0 | +3 | 3 |
| 4. Þróttur R. | 1 | 1 | 0 | 0 | 2 - 0 | +2 | 3 |
| 5. Grindavík | 1 | 0 | 1 | 0 | 1 - 1 | 0 | 1 |
| 6. Leiknir R. | 1 | 0 | 1 | 0 | 1 - 1 | 0 | 1 |
| 7. Vestri | 1 | 0 | 1 | 0 | 1 - 1 | 0 | 1 |
| 8. Völsungur | 1 | 0 | 1 | 0 | 1 - 1 | 0 | 1 |
| 9. Njarðvík | 1 | 0 | 0 | 1 | 0 - 2 | -2 | 0 |
| 10. Afturelding | 1 | 0 | 0 | 1 | 4 - 7 | -3 | 0 |
| 11. Grótta | 1 | 0 | 0 | 1 | 1 - 4 | -3 | 0 |
| 12. Ægir | 1 | 0 | 0 | 1 | 0 - 3 | -3 | 0 |



