Fotbolti.net
05.05.26 - 12:22
Kári Snorrason

Edin Terzic tekur við Athletic Bilbao (Staðfest)

Edin Terzic tekur við Athletic Bilbao (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Edin Terzic hefur verið ráðinn þjálfari Athletic Bilbao og tekur hann við baskneska félaginu í sumar eftir að Ernesto Valverde lætur af störfum sem þjálfari liðsins.

Terzic, sem er 43 ára gamall Þjóðverji, skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.
Terzic er fyrrum stjóri Dortmund en hann hefur ekki þjálfað síðan árið 2024. Hann hefur starfað sem sérfræðingur í sjónvarpi í Þýskalandi.

Andoni Iraola var orðaður við starfið hjá Bilbao en hann mun ekki halda áfram með Bournemouth eftir tímabil.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.