Víkingur Reykjavík samdi við markvörðinn Hrafnhildi Hjaltalín áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gærkvöldi.
Hrafnhildur er fædd árið 1999 og kemur frá Gróttu þar sem hún spilaði einn leik í Mjólkurbikarnum, í 2-1 tapi gegn Fylki.
Hrafnhildur er fædd árið 1999 og kemur frá Gróttu þar sem hún spilaði einn leik í Mjólkurbikarnum, í 2-1 tapi gegn Fylki.
Hrafnhildur þekkir ágætlega til í Víkinni þar sem hún hefur verið með þeim svolítið í vetur og verið á skýrslu í leikjum í Lengjubikarnum og í Reykjavíkurmótinu.
Hún er uppalin í Breiðabliki en hóf meistaraflokksferil sinn með HK. Hrafnhildur lék svo með Fjölni í tvö ár og var í kjölfarið á mála ÍBV, ÍH og Aftureldingu. Hún spilaði síðasta sumar með Aftureldingu í Lengjudeildinni.
Hún kemur til með að vera Grace McClellan, markverði Víkinga, til halds og trausts í sumar.



