Kári Kristjánsson hefur verið seldur frá FH aftur í uppeldisfélag sitt, Þrótt. FH segir í tilkynningu hafa komist að samkomulagi við Þrótt um kaupverð í dag.
Kári, sem er 21 árs miðjumaður, gekk í raðir FH frá Þrótti fyrir þetta tímabil. Hann var ekki í sérlega stóru hlutverki í upphafi móts hjá FH en liðið hefur farið illa af stað á tímabilinu og er með eitt stig að loknum fimm umferðum í Bestu deildinni.

Þá er betra að leikmaðurinn finni sér nýtt lið
„Kári kom að máli við okkur fyrir ekki svo löngu síðan og lýsti yfir vilja að fara aftur heim. Þróttarar voru tilbúnir að borga uppsett verð fyrir hann og í framhaldinu ákváðum við að leyfa leikmanninum að fara. Í þeirri uppbyggingu sem við erum í er mikilvægt að leikmennirnir okkar séu tilbúnir að leggja allt í verkefnið og þegar sú er ekki raunin þá er betra að leikmaðurinn finni sér nýtt lið,” segir Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, í tilkynningu Hafnarfjarðarfélagsins.
Þrótturum var spáð efsta sæti Lengjudeildarinnar hér á Fótbolta.net fyrir mót og hefur unnið báða fyrstu leiki sína í deildinni. Kári var lykilmaður í liðinu áður en hann fór í FH og stuðningsmenn Þróttar fagna því að endurheimta hann.