Fotbolti.net
05.05.26 - 23:20
Ívan Guðjón Baldursson

Jón Már Ferro ráðinn þjálfari ÍH (Staðfest)

Jón Már Ferro ráðinn þjálfari ÍH (Staðfest)
Canon

Mynd: ÍH

ÍH er búið að staðfesta ráðningu á Jóni Má Ferro sem þjálfara en hann lék 138 leiki fyrir liðið á fótboltaferlinum.
Jón Már er fæddur 1995 og er maðurinn sem skoraði markið sem tryggði ÍH deildarmeistaratitilinn í 4. deild árið 2020.

ÍH leikur í 4. deildinni eftir að hafa hríðfallið úr 3. deild í fyrra. Liðið endaði með 4 stig á deildartímabilinu.

Jón hefur verðugt verkefni fyrir höndum eftir hörmulegt gengi liðsins í 3. deildinni í fyrra. Það verður spennandi að fylgjast með Hafnfirðingum leika lystir sínar í 4. deild, en þetta er í fyrsta sinn sem ÍH fellur síðan Jón skaut liðinu upp um deild.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.