Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 22:20
Ívan Guðjón Baldursson
Frá Grindavík til Augnabliks (Staðfest)
Mynd frá því í fyrra.
Mynd frá því í fyrra.
Mynd: Breiðablik
Arnar Smári Arnarsson er kominn aftur heim í Kópavoginn eftir að hafa leikið sex leiki með Grindavík í Lengjudeildinni í fyrra.

Arnar Smári er uppalinn Bliki fæddur 2005 og er því partur af öflugum árgangi í Kópavogi.

Arnar hefur undanfarna mánuði spilað fótbolta samhliða háskólanámi í Bandaríkjunum og er ljóst að hann kemur til með að styrkja leikmannahóp Augnabliks í sumar.

Augnablik leikur í 3. deild eftir að hafa mistekist að komast upp úr deildinni í fyrra. Liðið endaði aðeins þremur stigum frá því að komast upp.



Slapp
banner
banner
banner