Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
   mán 04. maí 2026 19:36
Brynjar Ingi Erluson
Ægir nældi í bandarískan leikmann fyrir gluggalok (Staðfest)
Mynd: Ægir
Bandaríski leikmaðurinn Paul Leonard Skoczylas er genginn til liðs við Ægi.

Skoczylas kom til Ægis á reynslu fyrir nokkrum vikum og stóð sig mjög vel.

Félagið náði að koma skiptunum yfir línuna í tæka tíð fyrir gluggalok og mun hann taka tímabilið með Ægi í Lengjudeildinni.

Skoczylas er varnarmaður sem getur spilað báðar bakvarðarstöðurnar, en hann kemur úr bandaríska háskólaboltanum og þá hefur hann einnig spilað í Króatíu.

Hann lék sinn fyrsta leik með Ægi í 2-1 tapinu gegn HK í 2. umferð Lengjudeildarinnar, en Ægir er án stiga eftir fyrstu tvo leikina.


Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Þróttur R. 3 3 0 0 8 - 1 +7 9
2.    HK 3 2 0 1 9 - 6 +3 6
3.    Fylkir 3 2 0 1 5 - 2 +3 6
4.    ÍR 3 1 1 1 10 - 9 +1 4
5.    Afturelding 3 1 1 1 7 - 7 0 4
6.    Njarðvík 3 1 1 1 2 - 2 0 4
7.    Vestri 3 1 1 1 5 - 6 -1 4
8.    Leiknir R. 3 1 1 1 3 - 5 -2 4
9.    Grindavík 3 0 3 0 3 - 3 0 3
10.    Grótta 3 1 0 2 3 - 6 -3 3
11.    Völsungur 3 0 2 1 1 - 4 -3 2
12.    Ægir 3 0 0 3 1 - 6 -5 0
Slapp
banner