03.05.26 - 13:53
Ívan Guðjón Baldursson
Ed Still rekinn frá Watford (Staðfest)

Mynd: Watford

Mynd: Watford
Watford er búið að reka Edward Still úr þjálfarastólnum hjá sér eftir innan við þrjá mánuði í starfi.
Still var ráðinn í febrúar á tveggja og hálfs árs samningi sem átti að gilda til sumarsins 2028. Honum tókst þó ekki að gera góða hluti í Championship deildinni eftir að hafa tekið við stjórnartaumunum af Javi Gracia.
Þegar Still tók við var Watford í ellefta sæti Championship deildarinnar, aðeins þremur stigum frá umspilssæti, en liðið er aðeins búið að vinna þrjá af fimmtán deildarleikjum síðan þá.
Watford endaði í 16. sæti eftir slæmt gengi undir leiðsögn Still. Liðið endaði heilum 16 stigum frá umspilsbaráttunni og aðeins 10 stigum fyrir ofan fallsæti.
Lokaleikur tímabilsins var stórt tap á heimavelli gegn meisturunum í Coventry og kemur brottrekstur Ed Still, sem er aðeins 35 ára gamall, ekki á óvart.
Watford hefur nú leitina að fimmtánda aðalþjálfara félagsins síðan í september 2019. Fjórtán þjálfarar hafa því verið ráðnir inn á tæpum sjö árum, án þess að telja bráðabirgðaþjálfarana.

TENGT EFNI
Hefur engan áhuga á að taka við Watford - „Ekki séns"
Championship - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Birmingham | 15 | +14 | 29 |
| 2 | Middlesbrough | 15 | +11 | 29 |
| 3 | Stoke City | 15 | +6 | 29 |
| 4 | Wolves | 15 | +8 | 28 |
| 5 | West Brom | 15 | +8 | 28 |
| 6 | Swansea | 15 | +4 | 26 |
| 7 | Southampton | 15 | +14 | 24 |
| 8 | QPR | 15 | +6 | 24 |
| 9 | West Ham | 15 | +14 | 23 |
| 10 | Sheffield Utd | 15 | +2 | 22 |
| 11 | Portsmouth | 15 | +2 | 22 |
| 12 | Norwich | 15 | +8 | 21 |
| 13 | Blackburn | 15 | -1 | 21 |
| 14 | Cardiff City | 15 | 0 | 18 |
| 15 | Wrexham | 15 | -2 | 18 |
| 16 | Millwall | 15 | -4 | 18 |
| 17 | Bristol City | 15 | -8 | 18 |
| 18 | Bolton | 15 | -9 | 17 |
| 19 | Charlton Athletic | 15 | -10 | 17 |
| 20 | Watford | 15 | -10 | 15 |
| 21 | Lincoln City | 15 | -11 | 15 |
| 22 | Burnley | 15 | -9 | 10 |
| 23 | Derby County | 15 | -16 | 10 |
| 24 | Preston NE | 15 | -17 | 8 |