Nýkrýndir Portúgalsmeistarar FC Porto eru búnir að festa kaup á pólska miðverðinum Jakub Kiwior.
Kiwior festi sig í sessi sem byrjunarliðsmaður í sterku liði Porto á tímabilinu þar sem hann lék á láni frá Arsenal.
Porto borgar 17 milljónir evra til að nýta kaupákvæði í lánssamningnum eftir að hafa greitt 2 milljónir til að fá pólska landsliðsmanninn á láni í fyrra.
Arsenal getur þar að auki fengið 5 auka milljónir evra í árangurstengdar aukagreiðslur og loks fær úrvalsdeildarfélagið 2 milljónir í kassann þegar Kiwior verður seldur frá Porto.
Kiwior er 26 ára gamall og gerir fjögurra ára samning við Porto.
Até 2030 ????
— FC Porto (@FCPorto) May 5, 2026
FC Porto exerceu a opção de compra de Jakub Kiwior ??
?? https://t.co/pJyfJeF7se pic.twitter.com/3pxBbYc74s



