FRÉTTIR31.08.2024, 01:43
Chelsea hefur fengið Jadon Sancho í sínar raðir frá Manchester United. Sancho kemur á láni frá United og fylgir kaupskylda lánssamningnum.
Kaupskyldan er árangurstengd, kaupverðið verður allavega 20 milljónir punda en getur hækkað upp í allt að 25 milljónir punda út frá frammistöðu Chelsea í vetur. Því hærra sem Chelsea endar, því hærra verður kaupverðið. Ef Chelsea endar ekki í einu af efstu 14 sætum deildarinnar, þá þarf félagið ekki að kaupa Sancho.
FRÉTTIR31.08.2024, 01:05
Albanski sóknarmaðurinn Armando Broja er kominn til Everton á lánssamningi út tímabilið.
Broja var á leið til Ipswich fyrr í þessari viku en meiðsli komu í ljós í læknisskoðun.
Það hefur hinsvegar ekki stoppað Everton í að sækja þennan 23 ára leikmann. Hann mun samstundis fara í hendur læknaliðs Everton til að ljúka endurhæfingu sinni.
FRÉTTIR31.08.2024, 00:46
Raheem Sterling hefur verið tilkynntur hjá Arsenal. Hann kemur til félagsins á láni frá Chelsea út tímabilið.
Arsenal er það lið sem talið er líklegast til að veita Manchester City samkeppni um Englandsmeistaratitilinn en margir voru á því að liðið þyrfti að bæta við sóknarleikmanni. Nú er Sterling mættur með alla sína reynslu.
„Þetta er mögnuð tilfinning, ég er fullur tilhlökkunar. Ég tel að þetta passi fullkomlega fyrir mig og ég er ótrúlega ánægður með að þetta hafi tekist," segir Sterling.
„Það er hungur og samheldni hérna, og ég vil vera með í því."
Sterling er 29 ára og hefur leikið 82 landsleiki fyrir England. Hann var ekki í plönum Enzo Maresca stjóra Chelsea.
FRÉTTIR31.08.2024, 00:40
Reiss Nelson hefur verið lánaður frá Arsenal til Fulham út tímabilið.
Þessi 24 ára vængmaður virtist vera á leið til Ipswich en á endanum fór hann til Fulham.
„Koma hans markar endi á annasömum glugga hjá félaginu og við erum öll spennt fyrir því sem framundan er," segir Tony Khan yfirmaður fótboltamála hjá Fulham.
Nelson hefur leikið 50 leiki fyrir Arsenal og einnig leikið fyrir öll yngri landslið Englands.
FRÉTTIR30.08.2024, 23:59

Ivan Toney er genginn til liðs við sádí-arabíska félagið Al-Ahli frá Brentford.

Al-Ahli kaupir enska framherjann fyrir 40 milljónir punda.

FRÉTTIR30.08.2024, 23:56
Bandaríski markvörðurinn Matt Turner er genginn í raðir Crystal Palace á lánssamningi frá Nottingham Forest út tímabilið.
Palace þurfti nýjan markvörð eftir að hafa selt Sam Johnstone til Wolves fyrir tíu milljónir punda fyrr í dag.
Turner kom til Forest frá Arsenal en hefur ekki spilað eins vel og væntingar stóðu til. Hann fer væntanlega í hlutverk varamarkvarðar hjá Palace en Dean Henderson er aðalmarkvörður.
Belginn Matz Sels hefur varið mark Forest í upphafi tímabils.
FRÉTTIR30.08.2024, 23:54
Vængmaðurinn Carlos Forbs er kominn til Wolves á lánssamningi frá Ajax.
Úlfarnir eru með klásúlu um að geta keypt þennan tvítuga leikmann fyrir 13,5 evrur næsta sumar.
Forbs kom til Ajax frá Manchester City á síðasta ári, án þess að hafa leikið leik fyrir City. Hann spilaði 37 leiki í öllum keppnum fyrir Ajax á síðasta tímabili.
FRÉTTIR30.08.2024, 23:26
Það mátti ekki tæpara standa. Rétt fyrir gluggalok náði Southampton að tryggja sér Fílabeinsstrendinginn Maxwel Cornet á lánssamningi frá West Ham.
Þessi 27 ára framherji hefur verið í tvö tímabil hjá West Ham og spilað 37 leiki. Hann var hluti af leikmannahópnum sem vann Sambandsdeildina 2023.
FRÉTTIR30.08.2024, 23:09

Leicester hefur staðfest komu Odsonne Edouard á láni frá Crystal Palace út tímabilið.

FRÉTTIR30.08.2024, 22:57

Liverpool hefur lánað tvo unga leikmenn í Championship deildina.

FRÉTTIR30.08.2024, 22:56
Jay Stansfield er kominn til Birmingham frá Fulham. Þessi 21 árs framherji hefur skrifað undir sjö ára samning við Birmingham.
„Ég er hæstánægður. Ég vildi koma hingað aftur og takast á við næstu áskorun. Ég vildi vera hluti af þessu magnaða félagi og magnaða verkefni," segir Stansfield.
FRÉTTIR30.08.2024, 22:48
West Ham hefur tryggt sér spænska miðjumanninn Carlos Soler frá Paris St-Germain á lánssamningi út tímabilið.
Þessi 27 ára leikmaður hefur spilað fjórtán landsleiki fyrir Spán en hóf sinn feril með Valencia.
Árið 2022 gekk hann í raðir Paris St-Germain og hefur unnið franska meistaratitilinn tvívegis og bikarinn einu sinni.
FRÉTTIR30.08.2024, 22:27
Það var nóg að gera á skrifstofunni hjá Real Sociedad á gluggadeginum en Orri Steinn Óskarsson var keyptur frá FC Kaupmannahöfn.
Þá er varnarmaðurinn Nayef Aguerd kominn til félagsins frá West Ham, á lánssamningi sem gildir út tímabilið.
FRÉTTIR30.08.2024, 22:21
Nottingham Forest hefur fengið brasilíska varnarmanninn Morato frá Benfica í Portúgal.
Þessi 23 ára miðvörður hefur skrifað undir fimm ára samning á City Ground, til ársins 2029.
FRÉTTIR30.08.2024, 22:15
West Bromwich Albion hefur fengið varnarmanninn Mason Holgate á láni frá Everton út tímabilið.
Þessi 27 ára leikmaður þekkir West Brom vel en hann var hjá félaginu á láni 2019.
FRÉTTIR30.08.2024, 22:12

James Ward-Prowse er genginn til liðs við Nottingham Forest á láni frá West Ham.

FRÉTTIR30.08.2024, 22:09
Spænska félagið Real Betis hefur keypt argentínska miðjumanninn Giovani Lo Celso frá Tottenham.
Kaupverðið er í kringum 3,5 milljónir punda en getur hækkað eftir ákvæðum.
Lo Celso kom til Tottenham fyrir 27,7 milljónir punda árið 2019 frá Paris Saint-Germain eftir að hann hafði leikið vel á lánssamningi hjá Real Betis.
FRÉTTIR30.08.2024, 22:03
Úlfarnir eru búnir að landa brasilíska miðjumanninum Andre frá Fluminense en hann er keyptur á 21 milljón punda.
Þessi 23 ára Brasilíumaður yfirgefi Fluminense eftir 197 leiki fyrir félagið.
Fyrr í þessum glugga virtist hann vera á leið til Fulham en það varð ekkert úr því.
FRÉTTIR30.08.2024, 21:57

Eddie Nketiah er genginn til liðs við Crystal Palace frá Arsenal.

FRÉTTIR30.08.2024, 21:47

Wilfried Zaha er genginn til liðs við Lyon á láni frá Galatasaray.