Fotbolti.net
30.08.24 - 23:54
Elvar Geir Magnússon

Forbs til Wolves (Staðfest) - Chiquinho lánaður til Mallorca

Carlos Forbs.

Carlos Forbs.

Canon

Mynd: Getty Images

Vængmaðurinn Carlos Forbs er kominn til Wolves á lánssamningi frá Ajax.

Úlfarnir eru með klásúlu um að geta keypt þennan tvítuga leikmann fyrir 13,5 evrur næsta sumar.

Forbs kom til Ajax frá Manchester City á síðasta ári, án þess að hafa leikið leik fyrir City. Hann spilaði 37 leiki í öllum keppnum fyrir Ajax á síðasta tímabili.
Chiquinho lánaður til Mallorca
Úlfarnir tilkynntu það þá seint í kvöld að Chiquinho væri kominn til Mallorca á Spáni á lánssamningi út tímabilið.

Chiquinho er 24 ára gamall Portúgali sem kom til Wolves 2022.

Mallorca er þriðja liðið sem hann er lánaður til, eftir að hafa verið hjá Famalicao í heimalandinu og um stutt skeið hjá Stoke City.

Hann hefur aðeins spilað átta aðalliðsleiki fyrir Wolves.


Chiquinho.

Chiquinho.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.