Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 30. ágúst 2024 22:21
Elvar Geir Magnússon
Morato til Forest (Staðfest)
Morato lætur til sín taka hjá Benfica.
Morato lætur til sín taka hjá Benfica.
Mynd: EPA
Nottingham Forest hefur fengið brasilíska varnarmanninn Morato frá Benfica í Portúgal.

Þessi 23 ára miðvörður hefur skrifað undir fimm ára samning á City Ground, til ársins 2029.

Morata gekk í gegnum unglingastarf Sao Paulo áður en hann hélt til Benfica 2019 og lék 86 leiki fyrir liðið.

„Morato hefur verið til umræðu hjá okkur í síðustu félagaskiptagluggum og það er frábært að hann sé mættur. Við sjáum til þess að honum líði eins og heima hjá sér í Nottingham," segir Ross Wilson, yfirmaður fótboltamála hjá Forest.


Athugasemdir
banner
banner