Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
   fös 30. ágúst 2024 23:26
Elvar Geir Magnússon
Cornet til Southampton rétt fyrir gluggalok (Staðfest)
Russell Martin og Maxwel Cornet.
Russell Martin og Maxwel Cornet.
Mynd: X
Það mátti ekki tæpara standa. Rétt fyrir gluggalok náði Southampton að tryggja sér Fílabeinsstrendinginn Maxwel Cornet á lánssamningi frá West Ham.

Þessi 27 ára framherji hefur verið í tvö tímabil hjá West Ham og spilað 37 leiki. Hann var hluti af leikmannahópnum sem vann Sambandsdeildina 2023.

Russell Martin stjóri Southampton birti mynd af sér með Maxwel nú rétt áðan, þegar það var búið að staðfesta skiptin.

„Maxwel er mjög dínamískur leikmaður og kemur með nýja möguleika inn í hópinn okkar," segir Martin.

„Ég er hæstánægður með að stjórnin náði að fá inn annan sóknarleikmann. Hann er sjálfur mjög spenntur og ég held að þessi skipti muni hagnast honum og okkur."


Athugasemdir
banner
banner
banner