Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 30. ágúst 2024 22:03
Elvar Geir Magnússon
Brasilíumaðurinn Andre til Wolves (Staðfest) - Fabio Silva lánaður
Mynd: Getty Images
Úlfarnir eru búnir að landa brasilíska miðjumanninum Andre frá Fluminense en hann er keyptur á 21 milljón punda.

Þessi 23 ára Brasilíumaður yfirgefi Fluminense eftir 197 leiki fyrir félagið.

Fyrr í þessum glugga virtist hann vera á leið til Fulham en það varð ekkert úr því.

„Ég er ótrúlega spenntur fyrir því að fá hann hingað til okkar. Hann er vinnusamur varnartengiliður, vinnur tæklingar og annan bolta. Hann er líkamlega sterkur og ég held að hann smellpassi í úrvalsdeildina," segir Matt Hobbs íþróttastjóri Wolves.

Sóknarmaðurinn Fabio Silva hefur gengið í raðir Las Palmas á Spáni á lánssamningi út tímabilið. Þessi 22 ára leikmaður var lánaður til Rangers fyrr á árinu og hefur ekki spilað fyrir Wolves síðan í nóvember 2023.
Athugasemdir
banner
banner