Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
   fös 30. ágúst 2024 22:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Liverpool lánar tvo unga í Championship deildina (Staðfest)
Mynd: Getty Images

Liverpool hefur lánað tvo unga leikmenn í Championship deildina.


Hinn 18 ára gamli Ben Doak er genginn til liðs við Middlesbrough en hann hefur einhverja reynslu af því að spila með aðalliði Liverpool. Hann á að baki 10 leiki fyrir liðið síðan hann mætti í Bítlaborgina frá Celtic árið 2022.

Middlesbrough er með fjögur stig eftir þrjá leiki í 11. sæti deildarinnar.

Hinn 19 ára gamli Kaide Gordon er þá farinn frá Liverpool á láni til Norwich.

Hann hefur leikið sjö leiki fyrir Liverpool en hann lenti í langvarandi meiðslum sem hefur hægt á þróun hans.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner