Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25134 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR31.08.2024, 00:40

Nelson til Fulham (Staðfest)

Reiss Nelson hefur verið lánaður frá Arsenal til Fulham út tímabilið. Þessi 24 ára vængmaður virtist vera á leið til Ipswich en á endanum fór hann til Fulham. <i>„Koma hans markar endi á annasömum glugga hjá félaginu og við erum öll spennt fyrir því sem framundan er,"</i> segir Tony Khan yfirmaður fótboltamála hjá Fulham. Nelson hefur leikið 50 leiki fyrir Arsenal og einnig leikið fyrir öll yngri landslið Englands.

FRÉTTIR30.08.2024, 23:56

Turner lánaður til Palace (Staðfest)

Bandaríski markvörðurinn Matt Turner er genginn í raðir Crystal Palace á lánssamningi frá Nottingham Forest út tímabilið. Palace þurfti nýjan markvörð eftir að hafa selt Sam Johnstone til Wolves fyrir tíu milljónir punda fyrr í dag. Turner kom til Forest frá Arsenal en hefur ekki spilað eins vel og væntingar stóðu til. Hann fer væntanlega í hlutverk varamarkvarðar hjá Palace en Dean Henderson er aðalmarkvörður. Belginn Matz Sels hefur varið mark Forest í upphafi tímabils.

FRÉTTIR30.08.2024, 23:54

Forbs til Wolves (Staðfest) - Chiquinho lánaður til Mallorca

Vængmaðurinn Carlos Forbs er kominn til Wolves á lánssamningi frá Ajax. Úlfarnir eru með klásúlu um að geta keypt þennan tvítuga leikmann fyrir 13,5 evrur næsta sumar. Forbs kom til Ajax frá Manchester City á síðasta ári, án þess að hafa leikið leik fyrir City. Hann spilaði 37 leiki í öllum keppnum fyrir Ajax á síðasta tímabili.

FRÉTTIR30.08.2024, 23:26

Cornet til Southampton rétt fyrir gluggalok (Staðfest)

Það mátti ekki tæpara standa. Rétt fyrir gluggalok náði Southampton að tryggja sér Fílabeinsstrendinginn Maxwel Cornet á lánssamningi frá West Ham. Þessi 27 ára framherji hefur verið í tvö tímabil hjá West Ham og spilað 37 leiki. Hann var hluti af leikmannahópnum sem vann Sambandsdeildina 2023.

FRÉTTIR30.08.2024, 22:56

Stansfield til Birmingham (Staðfest) - Sjö ára samningur

Jay Stansfield er kominn til Birmingham frá Fulham. Þessi 21 árs framherji hefur skrifað undir sjö ára samning við Birmingham. <i>„Ég er hæstánægður. Ég vildi koma hingað aftur og takast á við næstu áskorun. Ég vildi vera hluti af þessu magnaða félagi og magnaða verkefni,"</i> segir Stansfield.

FRÉTTIR30.08.2024, 22:48

Soler til West Ham (Staðfest)

West Ham hefur tryggt sér spænska miðjumanninn Carlos Soler frá Paris St-Germain á lánssamningi út tímabilið. Þessi 27 ára leikmaður hefur spilað fjórtán landsleiki fyrir Spán en hóf sinn feril með Valencia. Árið 2022 gekk hann í raðir Paris St-Germain og hefur unnið franska meistaratitilinn tvívegis og bikarinn einu sinni.

FRÉTTIR30.08.2024, 22:27

Aguerd og Orri verða samherjar á Spáni (Staðfest)

Það var nóg að gera á skrifstofunni hjá Real Sociedad á gluggadeginum en Orri Steinn Óskarsson var keyptur frá FC Kaupmannahöfn. Þá er varnarmaðurinn Nayef Aguerd kominn til félagsins frá West Ham, á lánssamningi sem gildir út tímabilið.

FRÉTTIR30.08.2024, 22:21

Morato til Forest (Staðfest)

Nottingham Forest hefur fengið brasilíska varnarmanninn Morato frá Benfica í Portúgal. Þessi 23 ára miðvörður hefur skrifað undir fimm ára samning á City Ground, til ársins 2029.

FRÉTTIR30.08.2024, 22:15

Holgate lánaður til West Brom (Staðfest)

West Bromwich Albion hefur fengið varnarmanninn Mason Holgate á láni frá Everton út tímabilið. Þessi 27 ára leikmaður þekkir West Brom vel en hann var hjá félaginu á láni 2019.

FRÉTTIR30.08.2024, 22:09

Lo Celso keyptur til Real Betis (Staðfest)

Spænska félagið Real Betis hefur keypt argentínska miðjumanninn Giovani Lo Celso frá Tottenham. Kaupverðið er í kringum 3,5 milljónir punda en getur hækkað eftir ákvæðum. Lo Celso kom til Tottenham fyrir 27,7 milljónir punda árið 2019 frá Paris Saint-Germain eftir að hann hafði leikið vel á lánssamningi hjá Real Betis.

FRÉTTIR30.08.2024, 22:03

Brasilíumaðurinn Andre til Wolves (Staðfest) - Fabio Silva lánaður

Úlfarnir eru búnir að landa brasilíska miðjumanninum Andre frá Fluminense en hann er keyptur á 21 milljón punda. Þessi 23 ára Brasilíumaður yfirgefi Fluminense eftir 197 leiki fyrir félagið. Fyrr í þessum glugga virtist hann vera á leið til Fulham en það varð ekkert úr því.

FRÉTTIR30.08.2024, 21:19

Skotar sameinast hjá Napoli (Staðfest)

<p>Billy Gilmour er genginn til liðs við Napoli frá Brighton en hann skrifar undir fimm ára samning.</p><p>Ítalska félagið borgar 12 milljónir punda fyrir leikmanninn en það gæti hækkað upp í 16 milljónir punda.</p>

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.