FRÉTTIR30.07.2024, 10:13
Unnar Steinn Ingvarsson er genginn í raðir Þróttar Reykjavíkur frá Fylki og er kominn með leikheimild fyrir leikinn gegn Fjölni sem fram fer annað kvöld.
Unnar Steinn er í grunninn miðjumaður sem hefur einnig leyst stöðu bakvarðar hjá Fylki.
FRÉTTIR30.07.2024, 07:00
Ægir hefur fengið Aron Daníel Arnalds frá ÍR en þetta kemur fram í tilkynningu Ægis í kvöld.
FRÉTTIR30.07.2024, 06:00
Everton gekk í gær frá samningum við spænsku landsliðskonuna Inma Gabarro en hún kemur til félagsins frá Sevilla.
FRÉTTIR29.07.2024, 16:58
Riccardo Calafiori er genginn í raðir Arsenal. Hann skrifar undir langtímasamning og er kaupverðið um 42 milljónir punda. Bologna fær hluta af því kaupverði en Roma og Basel fá einnig einhvern hluta af þeirri köku.
Calafiori er 22 ára ítalskur varnarmaður sem var í byrjunarliði Ítalíu á EM í sumar. Hann er uppalinn hjá Roma, fór til Basel fyrir þarsíðasta tímabil og lék svo með Bologna á liðnu tímabili.
FRÉTTIR29.07.2024, 15:30
Spænski kantmaðurinn Bryan Gil er búinn að fá félagaskipti frá Tottenham til Girona á Spáni. Um er að ræða lánssamning út komandi tímabil.
FRÉTTIR28.07.2024, 19:37
Franski miðvörðurinn Raphael Varane er formlega genginn í raðir ítalska félagsins Como á frjálsri sölu en hann skrifaði undir tveggja ára samning í dag.
FRÉTTIR28.07.2024, 15:48
<p>Róbert Orri Þorkelsson mun klára tímabilið hjá Kongsvinger í Noregi en hann er á láni frá kanadíska liðinu CF Montreal.</p>
FRÉTTIR28.07.2024, 12:42
<p>Tottenham hefur nælt í suður-kóreska vængmanninn Min-Hyuk Yang een hann skrifar undir sex ára samning.</p>
FRÉTTIR27.07.2024, 22:55
Valur festi í kvöld kaup á Herði Inga Gunnarssyni, sem hefur verið á láni hjá félaginu frá FH. Bjarni Guðjón Brynjólfsson var á láni hjá FH frá Val fyrri hluta tímabilsins, en hefur nú skipt alfarið yfir í Fimleikafélagið.
FRÉTTIR27.07.2024, 11:43
ÍA hefur fengið Hauk Andra Haraldsson á láni frá franska félaginu Lille.
FRÉTTIR26.07.2024, 20:30
<p>Bakvörðurinn Ryan Sessegnon er genginn til liðs við Fulham frá Tottenham en hann gekk til liðs við Tottenham árið 2019 einmitt frá Fulham.</p>
FRÉTTIR26.07.2024, 19:48
Guðjón Baldvinsson lagði skóna á hilluna vegna þrálátra meiðsla eftir tímabilið 2021. Hann gæti þó verið að snúa aftur á völlinn, það er allavega stefnan.
Gaui, eins og hann er oftast kallaður, hefur fengið félagaskipti í KFG og stefnir hann á að geta tekið þátt í leik liðsins á miðvikudag.
FRÉTTIR26.07.2024, 17:30
Vaclav Cerny, 26 ára landsliðsmaður Tékklands, er kominn til Rangers í Skotlandi á lánssamningi frá Wolfsburg út komandi tímabil.
Cerny lék aðeins fjórtán byrjunarliðsleiki fyrir Wolfsburg á síðasta tímabili en það var hans fyrsta hjá félaginu eftir að hann kom frá Twente.
Cerny er kantmaður og var með tékkneska landsliðinu á EM í Þýskalandi.
FRÉTTIR26.07.2024, 13:30
Markvörðurinn efnilegi Herdís Halla Guðbjartsdóttir er komin aftur til Breiðabliks eftir að hafa verið á láni hjá FH fyrri hluta tímabilsins.
FRÉTTIR26.07.2024, 12:44
Kristín Dís Árnadóttir hefur sagt skilið við Bröndby eftir tvö og hálft hjá danska félaginu. Liðið var grátlega nálægt því að vinna tvo titla í vor en endaði með hvorugan því Nordsjælland hafði betur bæði í deildinni og í úrslitaleik bikarsins.
Kristín Dís er uppalin hjá Breiðabliki og hélt til Danmerkur í vetrarglugganum eftir tímabilið 2022. Hún sleit krossband á fyrsta tímabili sínu með Bröndby og sneri til baka fyrir um ári síðan.
Hún lék sem miðvörður og bakvörður í Danmörku og hefur verið í landsliðshópnum í síðustu verkefnum.
Hún verður 25 ára í næsta mánuði og hefur verið orðuð við annð félag í Danmörku, OB.
FRÉTTIR26.07.2024, 11:59
Jón Jökull Hjaltason hefur verið lánaður frá Þór til Þróttara í Vogum. Jón Jökull samdi til tveggja ára við Þór í vetur en hann kom frá Vestmannayejum.
Jón Jökull þekkir til í Vogum því hann lék með liðinu á láni fyrri part sumars 2022. Hann lék þó einungis tvo leiki með liðinu áður en hann fór aftur til Eyja.
<i>„Jón Jökull er 23 ára gamall fjölhæfur miðjumaður sem hefur leikið með ÍBV undanfarin fjögur tímabil áður eða áður en hann skipti yfir til Þórsara, en Jón ólst að hluta upp í Danmörku og fór þar í gegnum unglingstarf danska úrvalsdeildarliðsins AGF Aarhus,"</I> segir í tilkynningu Þróttara í dag.
Þróttur er í 6. sæti 2. deildar, sjö stigum frá 2. sætinu þegar níu umferðir eru eftir. Jón Jökull er kominn með leikheimild fyrir leikinn gegn Víkingi Ólafsvík í kvöld.
FRÉTTIR26.07.2024, 11:00
Everton hefur fengið danska landsliðsmanninn Jesper Lindström á láni frá Napoli.
Lindström verður á láni hjá Everton út komandi tímabil og svo á enska félagið möguleika á því að kaupa hann.
FRÉTTIR26.07.2024, 09:00
AS Mónakó er búið að festa kaup á gríðarlega spennandi táningi sem kemur til félagsins úr röðum Royal Antwerp í Belgíu.
FRÉTTIR26.07.2024, 06:00
Spænska stórveldið FC Barcelona er búið að festa kaup á tveimur leikmönnum sem léku hjá félaginu á láni á síðustu leiktíð og gerðu frábæra hluti með B-liði félagsins.
FRÉTTIR25.07.2024, 23:50
Tyrkneska félagið Trabzonspor er búið að krækja í miðvörðinn öfluga Stefan Savic sem kemur til félagsins eftir níu ár hjá Atlético Madrid.