Ægir fær Aron Daníel frá ÍR (Staðfest)

Mynd: Ægir

Mynd: Ægir
Ægir hefur fengið Aron Daníel Arnalds frá ÍR en þetta kemur fram í tilkynningu Ægis í kvöld.
Aron er 24 ára gamall vængmaður sem getur leyst fleiri stöður á vellinum.
Hann er uppalinn í Aftureldingu en einnig spilað með Hvíta riddaranum, KFR, KV og nú síðast ÍR.
Alls hefur hann skorað 27 mörk í 83 leikjum í deild- og bikar á ferlinum.
Aron verður kominn með leikheimild og verður því klár í slaginn er Ægir mætir Hetti/Huginn á miðvikudag.
Ægir er í 10. sæti 2. deildar með 15 stig þegar fjórtán umferðir hafa verið leiknar.