Barcelona kaupir Víctor og Mbacke (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Spænska stórveldið FC Barcelona er búið að festa kaup á tveimur leikmönnum sem léku hjá félaginu á láni á síðustu leiktíð og gerðu frábæra hluti með B-liði félagsins.
Börsungar borga um 3 milljónir evra fyrir Pau Víctor sem kemur úr röðum Girona, en hann skoraði 20 mörk og gaf 6 stoðsendingar í 39 leikjum.
Víctor, 22 ára, gerir fimm ára samning við Barca á meðan Mamadou Mbacke Fall, 21 árs, gerir tveggja ára samning, með möguleika á tveggja ára framlengingu.
Mbacke er sterkur miðvörður sem kemur úr röðum Los Angeles FC í MLS deildinni og kostar um 4 milljónir evra.