Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25139 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR12.08.2024, 13:54

Jón Arnar Barðdal í ÍBV (Staðfest)

Jón Arnar Barðdal hefur fengið félagaskipti frá KFG yfir í ÍBV og mun því klára tímabilið með Eyjamönnum. Jón Arnar er 28 ára sóknarmaður sem hefur spilað með KFG frá og með tímabilinu 2022 en þar á undan lék hann með HK í tvö tímabil. Hann hefur einnig leikið með ÍR, Fjarðabyggð, Þrótti og Skínanda á sínum ferli og á að baki þrettán keppnisleiki með uppedlisfélaginu Stjörnunni tímabilin 2014/15.

FRÉTTIR12.08.2024, 12:05

Gummi Hreiðars og John O'Shea aðstoða Heimi (Staðfest)

Heimir Hallgrímsson hefur staðfest það teymi sem verður með honum í þjálfun írska landsliðsins. Þar á meðal er markvarðaþjálfarinn Guðmundur Hreiðarsson. Þetta er þriðja landsliðið þar sem Heimir og Guðmundur vinna saman hjá en þeir voru hjá Íslandi og Jamaíku. „Guðmundur hefur verið mikilvægur hluti af þjálfarateymunum í gegnum minn feril og ég er hæstánægður með að hann geti starfað með mér áfram," segir Heimir við heimasíðu írska fótboltasambandsins.

FRÉTTIR12.08.2024, 10:53

Alfons Sampsted til Birmingham (Staðfest) - Skemmtileg kynning

Birmingham hefur tilkynnt um komu Alfonsar Sampsted til félagsins. Hann kemur á láni frá hollenska félaginu Twente og kynnir Birmingham komu hans á skemmtilegan hátt. Alfons verður á láni hjá Birmignham í vetur frá Twente og er enska félagið með kaupmöguleika á íslenska landsliðsmanninum. Gömul mynd af yngri flokka liði Breiðabliks er birt og sagt að tveir leikmenn úr því liði séu núverandi leikmenn Birmingham. Það eru þeir Willum Þór Willumsson og Alfons Sampsted.

FRÉTTIR11.08.2024, 21:26

Chris Brazell rekinn frá Gróttu (Staðfest)

Grótta tilkynnti í kvöld að Chris Brazell hafi verið rekinn úr starfi þjálfara meistaraflokks karla hjá félaginu. Grótta er í neðsta sæti deildarinnar með 13 stig eftir 16 leiki og en liðið tapaði 2 - 3 heima gegn Dalvík/Reyni í gær. Það virðist hafa verið síðasta hálmstráið og félagið ætlar að róa á önnur mið. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hver tekur við af honum en það verður tilkynnt innan tíðar.

FRÉTTIR11.08.2024, 15:15

Neto í Chelsea (Staðfest)

Pedro Neto er mættur í raðir Chelsea en þetta tilkynnti félagið á X-inu rétt í þessu. Neto var einnig tilkynntur fyrir framan stuðningsmenn Chelsea á Samford Bridge þar sem æfingaleikur Chelsea og Inter Milan er í gangi.

FRÉTTIR11.08.2024, 13:30

José í Leikni (Staðfest)

Leiknir hefur tilkynnt um komu nýs leikmanns. Gastao Fernandes er maðurinn en hann frá ítalska liðinu Carotenuto Mugnano.

FRÉTTIR11.08.2024, 09:04

Esbjerg kaupir Breka Baldursson (Staðfest) - „Spennandi fyrir mig"

Fram tilkynnti í morgun að félagið væri búið að selja Breka Baldursson til Esbjerg í Danmörku. Esbjerg spilar í næst efstu deild í Danmörku. Breki er miðjumaður sem heldur upp á átján ára afmælisdaginn sinn í dag. Hann er uppalinn hjá Fram og hafa félagaskiptin til Esbjerg legið í loftinu í smá tíma. Breki spilaði samtals 42 leiki fyrir meistaraflokk Fram og skoraði tvö mörk. Hann á þá að baki tólf leiki með yngri landsliðum Íslands. Breki skrifar undir fjögurra ára samning við Esbjerg og kemur inn í aðalliðshópinn hjá Esbjerg. Aðalþjálfari Esbjerg, Lars "Lungi" Sørensen, sér mikla möguleika í Breka. „Við kynntumst Breka Baldurssyni í gegnum okkar tengingar og þess vegna buðum við honum til Esbjerg svo við gætum séð hann í okkar umhverfi. Breki stóð sig mjög vel og það er engin spurning um að hann er hæfileikaríkur miðjumaður sem getur vonandi þróað sinn leik enn meira. Það verður náttúrulegur aðlögunartími hjá Breka í Esbjerg, en þegar horft er til langs tíma þá er hann leikmaður sem við höfum mikla trú á að geti haft áhrif fyrir okkur í aðalliðinu." Breki hafði sjálfur þetta að segja: „Ég er spenntur að hefja nýjan kafla í mínu lífi hér hjá Esbjerg. Þetta verður í fyrsta skipti þar sem ég spila einhvers staðar annars staðar en fyrir mitt uppeldisfélag, svo það er spennandi fyrir mig. Þegar ég var hér fyrr í sumar þá fékk ég góða tilfinningu fyrir aðstöðunni, liðsfélögunum og þjálfurunum, svo ég var ekki í neinum vafa um að þetta væri rétt skref fyrir mig og minn feril. Núna er ég spenntur að kynnast öllu enn betur og komast af stað," segir Breki sem fær treyju númer 27 hjá Esbjerg.

FRÉTTIR10.08.2024, 12:32

Solanke í Tottenham (Staðfest)

Tottenham tilkynnti rétt í þessu að Dominic Solanke sem nýjasta leikmann félagsins frá Bournemouth

FRÉTTIR10.08.2024, 12:00

Ungur Þórsari til dönsku meistaranna (Staðfest)

Danska meistaraliðið FC Midtjylland og knattspyrnudeild Þórs hafa komist að samkomulagi um að Þórsarinn Sigurður Jökull Ingvason gangi til liðs við danska félagið.

05.05.24 11:43
Midtjylland heldur áfram að skoða unga Þórsara

FRÉTTIR10.08.2024, 11:30

Todibo í West Ham (Staðfest)

West Ham staðfestu komu Todibo til félagsins rétt í þessu. Hann kemur á láni út tímabilið en West Ham getur keypt hann eftir tímabilið á 35 milljónir punda.

FRÉTTIR09.08.2024, 16:43

Guðmundur Andri heim í KR (Staðfest) - Fimm ára samningur

KR hefur gengið frá kaupum á Guðmundi Andra Tryggvasyni. Hann kemur frá Val og skrifar undir fimm ára samning í Vesturbænum. KR tilkynnti um komu Andra til félagsins í færslu á samfélagsmiðlum rétt í þessu. Hann er þriðji leikmaðurinn sem skrifar undir hjá KR í þessari viku en allir eiga þeir það sameiginlegt að vera fæddir árið 1999, eru uppaldir í KR og hafa allir skrifað undir fimm ára samning. Hinir tveir eru þeir Ástbjörn Þórðarson og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson.

FRÉTTIR09.08.2024, 15:00

Hákon Atli til Dalvíkur (Staðfest)

Hákon Atli Aðalsteinsson er genginn í raðir Dalvíkur/Reynis á láni frá KA út tímabilið. Hákon er 19 ára varnarmaður sem lék með Völsungi á síðasta tímabli og hefur verið í leikmannahópi KA á tímablinu. Hann kom við sögu í einum deildarleik og tveimur bikarleikjum fyrri hluta sumarsins.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.