FRÉTTIR04.11.2014, 12:00
Allra augu voru á Manchester liðna helgi þar sem City og United áttust við. Það var ekki boðið upp á markaveislu en þó dramatík þar sem Chris Smalling lét reka sig af velli á heimskulegan hátt áður en City tryggði sér 1-0 sigur.
FRÉTTIR28.10.2014, 12:05
Chelsea og Manchester United gerðu jafntefli í stórleik helgarinnar á Englandi, Arsenal fékk tvö mörk á silfurfati gegn Sunderland, Manchester City tapaði öðrum leik sínum á tímabilinu og Southampton sigldi upp í annað sætið. Hér að neðan má sjá úrvalslið vikunnar á Goal.com.
FRÉTTIR21.10.2014, 10:30
Southampton á þrjá menn í úrvalsliði helgarinnar í enska boltanum hjá Goal.com eftir 8-0 sigurinn á Sunderland um helgina. Chelsea, Manchester City og Everton eiga einnig tvo fulltrúa í liði vikunnar að þessu sinni.
FRÉTTIR06.10.2014, 10:30
Chelsea trónir örugglega á toppi ensku úrvaldsdeildarinnar eftir góðan sigur gegn Arsenal um helgina. Manchester City þurfti að hafa fyrir því að leggja Aston Villa, Liverpool komst aftur á sigurbraut og Mauricio Pochettino stýrði Tottenham til sigurs gegn Southampton.
Hér að neðan má sjá úrvalslið vikunnar í enska en að þessu sinni leituðum við til Garth Crooks, sérfræðings BBC. Hann valdi tvo leikmenn sem stóðu upp úr þegar Manchester United vann 2-1 sigur gegn Everton.
FRÉTTIR30.09.2014, 12:30
Diego Costa heldur áfram á beinu brautinni í ensku úrvalsdeildinni. Hann smellpassar inn í leikstíl Chelsea sem trónir á toppi deildarinnar. Hér að neðan má sjá úrvalslið vikunnar í öllu sínu veldi en Goal.com valdi.
FRÉTTIR22.09.2014, 11:10
Leicester City vann ótrúlegan 5-3 sigur á Manchester United um helgina í enska boltanum og West Ham lagði Liverpool. Frank Lampard skoraði gegn gömu félögunum í 1-1 jafntefli Manchester City og Chelsea.
Garth Crooks sér um að velja lið vikunnar fyrir BBC og hér má sjá val hans þessa vikuna.
FRÉTTIR16.09.2014, 12:00
Þrír leikmenn frá Manchester United eru í úrvalsliði helgarinnar í enska boltanum. United vann langþráðan 4-0 sigur á QPR um helgina þar sem nýju mennirnir hjá liðinu áttu flottan leik.
Úrvalsliðið er frá Goal.com að þessu sinni og stillt er upp í 3-5-2.
FRÉTTIR01.09.2014, 15:37
Leikur helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni var án nokkurs vafa ótrúlegur 6-3 sigur Chelsea gegn Everton. Chelsea er með fullt hús stiga líkt og Swansea. Manchester United og Arsenal gerðu aðeins jafntefli í sínum leikjum en Liverpool rúllaði yfir Tottenham.
Úrvalslið vikunnar í enska er að þessu sinni frá Garth Crooks hjá BBC.
FRÉTTIR26.08.2014, 12:00
Þá er komið að úrvalsliði vikunnar í enska boltanum en það er að þessu sinni fengið frá Goal.com. 2. umferðinni lauk í gær með sigri Manchester City gegn Liverpool. <b>Stevan Jovetic</b> skoraði tvö mörk í 3-1 sigri og í hægri bakverðinum var <b>Pablo Zabaleta</b> traustur að vanda.
FRÉTTIR19.08.2014, 11:12
Heil og sæl! Velkomin í fyrsta úrvalslið tímabilsins 2014-15 í ensku úrvalsdeildinni! Umferðinni lauk í gær þegar Chelsea vann 3-1 útisigur gegn Burnley.
Okkar maður, Gylfi Þór Sigurðsson, er að sjálfsögðu í liðinu eftir að hafa lagt upp mark og skorað í 2-1 sigri Swansea á Old Trafford. Við spilum leikkerfið 3-5-2 að þessu sinni!
FRÉTTIR12.05.2014, 10:15
Leikmenn Manchester City voru krýndir Englandsmeistarar þegar lokaumferðin fór fram um helgina. Hér að neðan má sjá úrvalslið vikunnar.
Varamarkvörðurinn Lukasz Fabianski spilaði hjá Arsenal og er í rammanum í úrvalsliðinu.
FRÉTTIR06.05.2014, 11:00
Úrvalslið vikunnar að þessu sinni kemur frá Goal.com og stillt er upp í 4-4-2 að breskum sið.
Arsenal á tvo menn í liðinu að þessu sinni en restin dreifist vel og níu önnur lið eiga fulltrúa!
FRÉTTIR29.04.2014, 10:20
Chelsea náði að blása meiri spennu í titilbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar með því að sækja stigin þrjú á Anfield í leik sem hefur verið talað mikið um á kaffistofum heimsins.
Það er vel við hæfi að Chelsea eigi þrjá af fjórum varnarmönnum í liði vikunnar en liðið er sótt frá félögum okkar á Goal.com að þessu sinni.
FRÉTTIR22.04.2014, 17:35
Úrvalslið vikunnar í ensku úrvalsdeildinni er klárt en að þessu sinni er það fengið frá Betfair.
Aaron Ramsey var frábær fyrir Arsenal um páskahelgina en hann er að sjálfsögðu í liðinu.
FRÉTTIR14.04.2014, 10:35
Garth Crooks hjá BBC hefur valið lið helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.
Garth var hrifinn af Liverpool liðinu í 3-2 sigrinum á Manchester City en fjórir leikmenn frá toppliðinu eru í liði vikunnar að þessu sinni.
FRÉTTIR08.04.2014, 08:30
Þá er komið að Domino\'s liðinu sem er að þessu sinni fengið frá Betfair. Það var mikil samkeppni um stöður í liðinu en aðeins ellefu sem fá pizzuveislur.
Stillt er upp í 4-2-3-1 þar sem Everton á að sjálfsögðu nokkra fulltrúa eftir frábæran sigur gegn Arsenal.
FRÉTTIR01.04.2014, 12:00
Um helgina sagði Jose Mourinho að Chelsea væri ekki lengur í titilbaráttunni á meðan Liverpool tók risastórt skref í átt að Englandsmeistaratitlinum.
Brendan Rodgers og félagar fóru illa með Tottenham í annað sinn á tímabilinu en mörk frá Luis Suarez, Coutinho og Jordan Henderson tryggðu 4-0 sigur.
FRÉTTIR24.03.2014, 10:10
42 mörk voru skoruð í ensku úrvalsdeildinni um helgina og úrvalsliðið hjá Garth Crooks á BBC er ansi sókndjarft að þessu sinni.
Liverpool á flesta fulltrúa eftir 6-3 útisigurinn á Cardiff. Þrír Liverpool menn eru í liðinu en Chelsea á tvo menn eftir 6-0 burstið gegn Arsenal.
FRÉTTIR17.03.2014, 07:00
Stórskemmtilegri umferð í ensku úrvalsdeildinni lauk með frábærum ofur-sunnudegi í gær.
Líkt og vanalega valdi Garth Crooks hjá BBC lið helgarinnar og birtum við það hér.
Arsenal á þrjá fulltrúa í liðinu úr 1-0 sigrinum gegn Tottenham. Þeir Laurent Koscielny, Mikel Arteta og Tomas Rosicky eru í liðinu.
Liverpool á tvo fulltrúa úr 3-0 sigrinum gegn Manchester United. Steven Gerrard er að sjálfsögðu í liðinu en einnig John Flanagan.
Gaman er að segja frá því að Martin Demichelis, varnarmaður Manchester City, kemst í liðið þessa vikuna en hann hefur verið afar harðlega gagnrýndur undanfarið.
Hér að neðan má sjá liðið í heild sinni.
<img border=\"1\" src=\"http://fotbolti.net/images/news/153000/153799/500w.jpg\">
FRÉTTIR10.03.2014, 10:00
Úrvalslið vikunnar í enska boltanum er með aðeins öðruvísi sniði en vanalega.
Fimm leikir voru í ensku úrvalsdeildinni og fjórir í 8-liða úrslitum enska bikarsins en hér að neðan má sjá úrvalsliðið hjá Garth Crooks á BBC.
Manchester United á fjóra fulltrúa í liðinu eftir sigurinn á WBA og Chelsea á þrjá.