Fotbolti.net
06.05.14 - 11:00
Magnús Már Einarsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Tíu lið eiga fulltrúa

Bacary Sagna er í vörninni.

Bacary Sagna er í vörninni.

Canon

Mynd: Getty Images

Úrvalslið vikunnar að þessu sinni kemur frá Goal.com og stillt er upp í 4-4-2 að breskum sið.

Arsenal á tvo menn í liðinu að þessu sinni en restin dreifist vel og níu önnur lið eiga fulltrúa!


Markvörður - Hugo Lloris (Tottenham)
Þrátt fyrir tap gegn West Ham þá fær Lloris sæti í liðinu eftir að hafa bjargað Spurs frá frekari niðurlægingu.

Hægri bakvörður - Bacary Sagna (Arsenal)
Sagna hjálpaði Arsenal að halda hreinu gegn WBA.

Miðvörður - Wes Brown (Sunderland)
Brown fór á sinn gamla heimavöll Old Trafford og hjálpaði Sunderland að halda hreinu.

Miðvörður - Michael Turner (Norwich)
Turner og félagar í Norwich náðu í markalaust jafntefli á Stamford Bridge.

Vinstri bakvörður - Luke Shaw (Southampton)
Shaw átti enn einn stórleikinn með Southampton gegn Swansea.

Hægri kantamður - Andreas Weimann (Aston Villa)
Weimann skoraði tvö fyrir Aston Villa gegn Hull.

Miðjumaður - Mesut Özil (Arsenal)
Özil er að enda tímabilið vel með Arsenal.

Miðjumaður - Ross Barkley (Everton)
Barkley skoraði stórbrotið mark fyrir Everton gegn Manchester City.

Vinstri kantmaður - Oussama Assaidi (Stoke)
Assaidi hjálpaði Stoke að sigra Fulham örugglega.

Framherji - Dwight Gayle (Crystal Palace)
Gayle eyðilagði titilvonir Liverpool nánast endanlega með því að skora tvö mörk eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

Framherji - Edin Dzeko (Manchester City)
Dzeko hjálpaði City skrefi nær titlinum með tveimur mörkum gegn Everton.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska boltanum
Weimann skoraði tvö um helgina.

Weimann skoraði tvö um helgina.

Canon

Mynd: Getty Images

Edin Dzeko er frammi.

Edin Dzeko er frammi.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.