Fotbolti.net
01.04.14 - 12:00
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Sterling og Suarez með

Alexander Büttner er í úrvalsliðinu.

Alexander Büttner er í úrvalsliðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Um helgina sagði Jose Mourinho að Chelsea væri ekki lengur í titilbaráttunni á meðan Liverpool tók risastórt skref í átt að Englandsmeistaratitlinum.

Brendan Rodgers og félagar fóru illa með Tottenham í annað sinn á tímabilinu en mörk frá Luis Suarez, Coutinho og Jordan Henderson tryggðu 4-0 sigur.


Asmir Begovic er í markinu í úrvalsliði helgarinnar en hann hélt hreinu í naumum 1-0 sigri Stoke gegn Hull.

Hinn ungi Calum Chambers hefur staðið sig vel í hægri bakverðinum hjá Southampton og var flottur í sigri gegn Newcastle. Alexander Buttner mun líklega eiga erfiðara vekefni fyrir höndum í kvöld en frammistaða hans gegn Aston Villa kemur honum í liðið. Joel Ward átti frábæran leik í vörn Crystal Palace gegn Chelsea.

Það eru samkeppni um miðjustöðurnar en ekkert gat komið í veg fyrir að Adam Lallana fengi sæti í liðinu. Hann var hreint magnaður, bjó til eitt mark og skoraði annað af löngu færi fyrir Southampton.

Juan Mata opnaði markareikning sinn fyrir Manchester United og Jonathan de Guzman skoraði tvívegis fyrir Swansea þegar liðið vann þægilegan sigur á Norwich.

Raheem Sterling sá til þess að varnarmenn Tottenham voru í allskonar vandræðum á sunnudaginn og er í úrvalsliðinu líkt og Luis Suarez.

Jay Rodriguez heldur áfram að banka á dyr enska landsliðsins og Wayne Rooney skoraði gegn Aston Villa.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.